Við komumst að því að þrusugóðri æfingu í dag að fleiri kæmust á fundinn í hádeginu á morgun en ef við héldum hann á þriðjudaginn svo við ákváðum að breyta (sorry Ásdís:( ) Fundurinn verður sem sagt á morgun, 1. maí, klukkan 12:00 á Greifanum. Við ætlum að fá okkur súpu og salat og greiða 990 krónur fyrir það. Það er mjög mikilvægt að allir mæti á fundinn (sem mögulega komast) og láti vita ef þið komist ekki, annað hvort hérna á síðunni eða senda sms í síma 8698650. Á þessum fundi verður ALLT ákveðið, þjáflaramál, peningamál, skipulagsmál, stjórnarmál og allt það sem hægt er að setja í samsett orð með orðinu mál!
Komdu eða vertu ferhyrnigur!
Æfingin í dag var nokkuð öflug. Svartar voru að gera gott mót og unnu tæpa 20 leiki í röð. Það er gaman að segja frá því að það voru mislitar sem stöðvuðu sigurgöngu þeirra eftir ítrekaðar tilraunir og allskyns spekúleringar. Við komumst að því að það er best að láta einn hanga frammi! Vestin voru alveg frábær og fóru íshokkídömunum og Lísu mjög vel, þetta snýst jú allt um að lúkka.
Hrafnhildur, Stefanía, Þóra, Sigrún Björk og Inga Dís, þið eruð vinsamlegast beðnar um að hætta að ákveða í hvaða lit þið ætlið að mæta fyrir hverja æfingu og svo skulið þið líka hætta að æfa ykkur heima 4 klukkutíma á dag því við viljum ekki að þið verðið keyptar í önnur lið og svo lítur þetta líka svo illa út fyrir okkur hinar
Við erum auðvitað aðalfréttaefnið þessa dagana *frétt* og *frétt* fyrir utan það að Dagný hefur fengið símhringingu frá fréttablaðinu.
Áfram Magni!
/Jóna og Berglind