Nú erum verið að gera tilraun til að stofna nýtt kvennalið á Akureyri og í nærsveitum,nánar tiltekið á Grenivík;)
Undirbúningsfundur verður í kvöld klukkan 21:15 á Kaffi Akureyri og hvetjum við allar stelpur sem hafa áhuga á þessu að mæta á fundinn.
- Um hvað snýst þetta? Fyrst og fremst erum við að tala um skemmtilegan félagasskap og fótbolta! Þó er alvara í þessu upp að vissu marki því við erum að skuldbinda okkur til að hafa hóp í hvern leik í sumar. Við viljum alls ekki að botninn detti úr þessu á miðju sumri.(athugið að við höldum að það sé ekki leyfilegt að taka þátt í bæði þessu og pollamóti). Auðvitað vilja allir vera í góðu liði sem vinnur leiki og er í góðu formi en það verður undir hverjum og einum komið í hversu góði formi viðkomandi er nema við höfum einhvern þrekhóp af og til en þetta er allt eitthvað sem við þurfum bara að ákveða í sameiningu.
- Magni: Magnamenn hafa tekið vel í þetta og þó við höfum ekki fengið ákveðið svar þá hefur allt verið jákvætt í samskiptum okkar.
- KSÍ: Þeir hjá KSÍ eru ekki búnir að lofa neinu en segjast vera tilbúnir að leggja mikið á sig til að taka við nýju kvennaliði í þennan riðil.
- Nýtt lið: Það er líka möguleiki en þá þyrftum við að finna okkur heimavöll og við þyrftum að vera með stjórn og fá einhverja til að mæla með okkur við KSÍ og þetta tæki allt lengri tíma og yrði erfiðara en ef Magni er tilbúinn að taka við okkur.
- Leikir: Við búumst við 10 leikjum í allt í sumar, 5 útileikir og 5 heimaleikir. Við þyrftum sennilega að borga 1000 kall í bensín í hvern leik ef við fáum ekki styrki.
- Kostnaður: Við þurfum að fá styrki því það er allskyns kostnaður sem fylgir þessu. Við þurfum búninga, dómara, ferðir, félagaskipti o.fl.
- Skipulag: Okkar hugmynd er sú að liðið hefði 3-5 manna stjórn. Þessi stjórn tæki að sér að sjá um liðið, bæði sem þjálfarar en einnig myndu þessar stelpur sjá um að leita styrkja og skipuleggja æfingatíma og fleira þessháttar. Það yrði þó alltaf einn aðalþjálfari og einn formaður stjórnar því það er alltaf gott að láta einhvern taka ábyrgð.
- Æfingasvæði: Við komum ekki til með að þurfa að fara út á Grenivík og æfa þó það sé auðvitað skynsamlegt að gera það stundum þar sem þetta yrði okkar heimavöllur. Við höfum hug á því að finna æfingasvæði hérna á Akureyri eða í næsta nágrenni.
- Æfingar í vetur: Við höfum hugsað okkur að hittast 2svar-3svar í viku á sparkvelli og jafnvel verður einhverntíman hægt að fara í Bogann ef við sjáum smugu á því. Einhverntíman getum við líka tekið þrekhring og fótbolta innanhúss og reynt að hafa þetta fjölbreytt þennan einn og hálfa mánuð sem eftir lifir fram að keppnistímabili.
- Hvað svo? Núna erum við að sjá hversu mikill áhugi er fyrir þessu. Næsta skref er að semja við Magna (ef báðir aðilar komast að þeirri niðurstöðu að það sé skynsamlegt). Svo skrá Magnamenn okkur til keppni í Austurlandsriðli og allt fer í gang og allir lifa hamingjusamir til æviloka!
Sjáumst í kvöld!
apríl 5, 2006 klukkan 4:07 pm
Það er aldrei að vita nema að hægt sé að betla styrki hjá Portus.is…?
apríl 5, 2006 klukkan 4:12 pm
Hehe magnað…og vera með Portus á rassinum á stuttbuxunum;)