Við erum magnaðar, það verður nú ekki af okkur tekið
Frábær byrjun á frábæru sumri hjá okkur og það var sérlega hressandi og gott fyrir sjálfstraustið í liðinu að byrja þetta svona. Það eru að sjálfsögðu allskyns hlutir sem þarf að laga en við erum allavega í nokkuð góðum málum miðað við aldur og fyrri störf.
Mörkin skoruðu: Berglind Y. 2, Hansína, Inga Dís, Jóna Benný og Steinunn 1 mark hver. Markið varði Dagný Linda 83.
Nú þýðir ekkert að gefa eftir og við skulum setja allt á fullt þessa rúmu viku sem við höfum til stefnu fyrir fyrsta ALVÖRU leikinn okkar.
Næsta æfing er á sparkvelli við Oddeyrarskóla á fimmtudaginn klukkan 17:30.
Endilega tjáið ykkur um leikinn í kommentakerfinu og það má bara nota falleg lýsingarorð
Kv.
Jóna B.
maí 16, 2006 klukkan 11:19 pm
Glæsilegur leikur hjá okkur í kvöld. Við erum sko magnaðar, það er ekki hægt að taka það af okkur. Hörku barátta og leikgleði var allan leikinn og við verðum að endurtaka þetta 25. maí í fyrsta deildarleiknum okkar.
Áfram Magni
maí 16, 2006 klukkan 11:25 pm
Já snilldar leikur og VÁÁ hvað þetta var gaman.. hrein SNILLD..!
maí 17, 2006 klukkan 12:49 am
Beauty frábær leikur stelpur
maí 17, 2006 klukkan 7:39 am
Til hamingju stelpur ég sá leikinn og fannst margt gott í gangi þó að formið mætti vera töluvert betra en það kemur. Það sem mér fannst þó mest gamana að sjá var hvað þið skemmtuð ykkur vel og það er aðalmálið í þessu.
maí 17, 2006 klukkan 10:10 am
þið voruð góðar skvísur:) svo verður bara rúllað Fjarðarbyggð upp á fimmtudaginn næsta:)
maí 17, 2006 klukkan 11:34 am
Algjör snilld stelpur
:) Þetta var brilliant leikur
:)
maí 17, 2006 klukkan 12:42 pm
Frábær leikur stelpur
Sjáumst á æfingu á morgun.
maí 17, 2006 klukkan 1:25 pm
Glæsilegt stelpur
maí 17, 2006 klukkan 1:55 pm
við erum náttla bara snillingar!!!! þvílíkt skemmtilegt:):)
maí 17, 2006 klukkan 2:05 pm
Við erum æði..Moli þetta var ekki rangstæða, á eftir að nota þetta í allt sumar hahahahaha
Þessir völlarar vita ekkert maður hahahaha
En allavega geggjaður leikur og ég er sammála Reimari við vorum að hafa virkilega gaman af þessu og það á að halda því áfram takk fyrir
maí 17, 2006 klukkan 2:14 pm
Kærkomin sigur fyrir egóið okkar en höldum okkur samt á jörðinn
Það eru 15 leikir eftir
Ég veit samt að ég get lofað því að við getum alveg tekið marga, marga sigra í viðbót enda með frábæran mannskap + mikla gleði í rassvasanum;)
Ég lofa því líka að fara ekki að grenja í næsta leik!! helv…gæran…moahahha…
Algjör snilld þetta MAGNA lið;)
maí 17, 2006 klukkan 3:15 pm
Tið eruð frábærar
vonandi haldið þið svona afrám þið getið það
maí 17, 2006 klukkan 4:04 pm
Góður leikur – við getum allt ef við viljum það! Held að þessi leikur sé forsmekkurinn af því sem koma skal í sumar! Þetta verður alveg geggjað!
maí 17, 2006 klukkan 4:26 pm
Já formið hefði nú mátt vera betra
hva er ekki nægur tími til að laga það
Magnaður Magni !
maí 17, 2006 klukkan 5:23 pm
Já snilldarleikur, ökklinn er strax betri en því miður verð ég að afboða mig á æfingar þessa vikuna vegna vinnu alltaf á sama tíma virðist vera og vá hvað ég er ósátt en svona er lífið, maður getur ekki verið allsstaðar þó ég sé margklofinn persónuleiki
Var stolt af okkur í gær og vona að mallinn verði betur stemmdur fyrir næsta leik, tíhí….go girls..Kv. Liz
maí 17, 2006 klukkan 5:59 pm
hvað er málið með að bjóða manni að nota svona html sem maður kann ekkert á
hehehe
Þið Massið næstu leiki eins og þennan.
maí 17, 2006 klukkan 6:14 pm
hæ hehhehehe . viljið þið eyða síðustu þremur kommentum fyrir mig
ég var að prufa þetta blessaða linka dæmi
mig langaði að óska ykkur til lukku með sigurinn í gær og þið massið þetta áfram í sumar
maí 17, 2006 klukkan 9:23 pm
stelpur við erum bara lang bestar!!!
sjáumst á morgun!
maí 18, 2006 klukkan 12:16 pm
hæ stelpur frábær leikur hjá okkur öllum stóðum okkur bara vel miða við fyrst leik ;*)
enn verðu æfingin í dag í einn eða ein og hálfan klukku tíma í dag ?
maí 18, 2006 klukkan 12:58 pm
Það fer örugglega eftir því hvað við verðum tímanlega og fljótar að koma okkur í gang
maí 18, 2006 klukkan 1:49 pm
sælar stúlkur, æfingin er áætluð 17.30 – 18.39…. nú væri sterkt að hlaupa á æfingu ?
maí 18, 2006 klukkan 2:53 pm
ég kemst ekki á æfingu er buinn í vinnuni kl 18:15 en ég reyni að fara út að hlaupa í staðinn okey heyrumst
maí 18, 2006 klukkan 3:16 pm
Ég kem ekki á æfingu í dag :-/ er að vinna…. er hægt að hafa æfinguna á Laugardaginn kl 9.00 ???
maí 18, 2006 klukkan 3:43 pm
ég má víst ekkert mæta á æfingu fyrr en á mánudaginn, þannig að ég held að það sé best að jafna sig áður en ég meiði mig aftur;)
maí 18, 2006 klukkan 6:05 pm
Ohhhh…sit hérna heima með eina tveggja ára og aðra fjögra ára…Ný búnar með frekjukastið á frænku sína…þannig ég kemst ekki einu sinni að horfa á ykkur!! Vonandi er gaman, eða ég veit það er gaman
Kem á laugardaginn ef ökklinn leyfir
maí 19, 2006 klukkan 4:38 pm
Jamm þokkalega awesome leikur.. við erum án efa laaang flottastar
Nú er bara að skella hlaupaskónum á og hlaupa út um allar trissur í sumar… sjáumst
ágúst 27, 2006 klukkan 8:22 am
Thanks so very much for taking your time to create this very useful and informative site. I have learned a lot from your site. Thanks!!
júní 7, 2007 klukkan 7:33 pm
oxycontin photo
desember 13, 2008 klukkan 5:08 pm
Thanks!,