Leikur í kvöld!

Magni og Vinir eru að fara að spila í Boganum í kvöld klukkan 20:00. Kíkkið á það og hvetjið okkar menn :)

Skrifað í Uncategorized. 17 ummæli »

17 svör to “Leikur í kvöld!”

  1. Alma Says:

    Hvenær er næsta æfing?

  2. Stefanía Says:

    þriðjudag

  3. Hrabba Says:

    Já ég mæti í bogann, en mun þó hvetja minn mann og hans vini ;)
    Hlakka til, verður pottþétt skemmtilegur og spennandi leikur :)

    Reikna með að hitta allvega Sæu og Birnu í kvöld ;)

  4. Reimar Says:

    Hrabba þetta er áfall hélt að ég ætti stuðning ykkar allra vísan

  5. Hrabba Says:

    AAAAaa hvað á maður að segja, vona að magnamönnum gangi vel í kvöld en mun ég mun hvetja mína menn til sigurs ;) Ef maður hvetur ekki sinn mann, hvern þá, heheh, svo heita þeir vinir, hversu flott er það :)

  6. Birna Says:

    hehehe…jabb ég mæti sko að horfa á þessa bossa, enda þeir flottustu í bænum- Ekki satt hrabba :)

    Er samt alvarlega að spá í að taka plaststól með í rassvasann!!Alveg ómögulegt að standa þarna í 90 mín. !

    ÁFRAM MAGNI…. c”,)

  7. Reimar Says:

    Sammála síðasta ræðumanni “ÁFRAM MAGNI”

  8. Sæa Says:

    blessaðar jæja ég tók sko greinilega vel á því í leiknum í gær ég ligg veik heim við hita og bara alla pakkan ;( en þið verið að kvetja okkar menn í magna ég kemst ekki heyumst seinna vonadi verð ég hressari á morgun heyrumst ;)
    ÁFRAM MAGNI !!!!!

  9. Inga Dís Says:

    Ég er alltaf til í að horfa á hitt kynið, þannig að ég mæti ;)

  10. Diddý Says:

    Klukkan hvað er æfingin á morgun og hvar??? Er að hugsa um að gefa bara skít í þetta læri…það var svo gaman að horfa á ykkur í gær að mig kitlar bara í fæturnar…

    Segji bara eins og allir “GO MAGNI”

  11. Solla Says:

    Tjéllan er nærrum því orðin magnagella, ég þarf bara að fá félagaskipti og þá er ég geim..er einhver sem getur sagt mér hvert ég sný mér í því máli?? Svo er það annað, ég kem ekki á æfingu í kvöld eða á morgun .. er að vinna …hvenær er þá næsta æfing á eftir því ?? solla

  12. Solla Says:

    já og til hamingju með sigurinn tjéllur :D

  13. Jóna Benný Says:

    Allir sem eru búnir að kvíða ferðinni á Höfn, þetta tekur enga stund ;) 5 tímar og korter með stoppi í Bónus Egilsstöðum þar sem gerð voru stórinnkaup fyrir stórfjölskylduna á Hornafirði ;) En hérna ég veit ekki alveg klukkan hvað æfingin er, hringi í Mola á eftir og hendi þessu á netið í kveld…ef hann verður ekki búinn að því…

    Með félagaskiptin Solla, þú prentar út blað á félagaskiptasíðunni á ksi.is (ferð fyrst í mót og svo eyðublöð og þar finnur þú rétta blaðið) Svo ferðu með það til KA eða Þórs ef þú varst í þeim liðum og færð undirskrift hjá þeim og setur að sjálfsögðu þína undirskrift líka og svo ferðu með blaðið til Reimars á skirfstofu Bautans :)

    Jæja, þetta er orðið sæmilega langt…
    Hafið það gott elskurnar mínar
    Áfram Magni!!!

  14. beglindy Says:

    Já flottur leikur í gær kjellur , vorum frekar óheppnar í fyrri hálfleik að setja hann ekki og maður fann að það lá í loftinnu en svo kom þetta allt í seinni ;) kem spræk á á æfingu á morgunn. svo er það bara:

    ÁFRAM MAGNI :)

    P.S allar stóðu sig vel og takk fyrir kósýstund í pottinum eftir leik , jóna b heppin að kveikja ekki í lubbanum……. :)

  15. Stefanía Says:

    Það stendur hérna fyrir neðan frá Mola að það sé æfing í Oddeyraskóla á morgun kl 1900.
    P.s. þið voruð allar ógðeslega góðar í leiknum í gær annars hefðum við jú ekki unnið. ;)
    Áfram MAGNI

  16. Inga Dís Says:

    Hi gellzzz ég setti nokkrar myndir úr fjarðarbyggðarleiknum ;)

  17. Sigrún Sigm..! Says:

    ég var að reyna að bæta inn mynd inn á það.. En ég svo mikil klaufi að ég gat það ekki.. :S


Skildu eftir svar