Höttur 1 – 2 Magni
Magnastúlkur fóru með mjög þunnan hóp austur á land um helgina. Það voru 12 stelpur tilbúnar í leik á móti Hetti en við unnum að sjálfsögðu leikinn þó við höfum lent í smá strögli og 1-0 undir. Frábær karakter í liðinu og við náðum að setja 2 mörk áður en leikurinn var úti og áttum nokkur góð færi sem við kláruðum ekki.
Mörkin skoruðu Birna (með skalla úr horni) og Þóra P.
Leiknir F. 1 – 5 Magni
11 stelpur mættar í leik (+ Sandra sem gat því miður ekki spilað vegna meiðsla). Frábær leikur og fyrri hálfleikur var einhver sá skemmtilegasti sem spilaður hefur verið í heiminum, jákvæðni og bjartsýni einkenndu liðið þrátt fyrir að við værum nokkuð stressaðar vegna varamannaskorts
0 – 4 fyrir okkur í hálfleik og við hreinlega óðum í færum. Seinni hálfleikur var aðeins erfiðari en við áttum fjölmörg færi sem við hefðum átt að nýta betur en samt sem áður flott barátta og góður leikur hjá öllum leikmönnum liðsins. Við misstum Lísu útaf á 70. mínútu eftir að hún tók eina snögga niður sem var komin í gegn og fékk beint rautt spjald, en það er alls ekki neitt sem við ætlum að erfa við hana því hún gerði bara það sem hún þurfti að gera í þessari stöðu og stóð eins klettur í vörninni allan tímann fram að þessu.
Mörkin skoruðu: Birna (með skalla úr horni), Lísa (með skalla úr horni), Kata V. 2 og Kata A. 1
Það er gaman að segja frá því að þó nokkrar stelpur í liðinu voru að spila sína fyrstu 90 mínútna leiki á ævinni og stóðu sig alveg eins og hetjur, eins og allir aðrir leikmenn.
Veðrið var frábært, þjálfarar ferðarinnar frábærir, foreldrar Söndru og Sigrúnar frábærir, mórallinn frábær, keppnisskapið frábært og svona gæti ég talið heillengi áfram…
Þessi ferð var í einu orði sagt FRÁBÆR! Takk fyrir mig og ég er stolt af því að vera í svona MÖGNUÐU liði (smá væmið í lokin
)
Næsta æfing er á MIÐVIKUDAG KLUKKAN 20:00 Á KA-VELLI
Skokk og teygjur á morgun, þær sem voru ekki að spila taka kannski smá extra hreyfingu.
Kveðja
Jóna Benný
P.S. Eitt sem var ekki sérstaklega frábært var þegar Tóti tapaði unnum kubb-leik með því að kasta í kónginn en þú færð kannski annan séns seinna félagi…