Höttur 1-1 Magni
Þrátt fyrir að vera eins svakalega góðar og fallegar og við erum þá töpuðum við 2 stigum í þessum leik. Það verður seint sagt að við höfum “átt” leikinn, en við áttum klárlega áhorfendapallana! Markið þeirra var að sjálfsögðu rangstöðumark og er engu logið þar um. Ég er farin að hallast að því að helmingur þeirra örfáu marka sem við höfum fengið á okkur í sumar séu rangstöðumörk þar sem línuvörðurinn klúðrar málunum algjörlega. Markið skoraði fyrirliðinn spræki, Þóra Pétursdóttir með glæsilegum skalla úr hornspyrnu. Við höfum einhverntíman átt betri leik, en það verður nú að hafa smá spennu í þessari deild
Fjarðabyggð 2-8 Magni
Þessar tölur gefa engan veginn rétta mynd af leiknum, því í rauninni hefði hann átt að fara 1-11. Mjög athugull dómari leiksins sem ýmist sá ofsjónir eða bara hreinlega ekki neitt dæmdi umdeilda vítaspyrnu Fjarðabyggð í hag og dæmdi hvorki meira né minna en 3 mörk af okkur og svo skemmtilega vill til að þau voru öll skoruð af afmælisbarni gærdagsins Katrínu Vilhjálmsdóttur. Hún sat sem sagt ekki auðum höndum á miðjum vellinum, því hún skoraði 4 mörk til viðbótar í leiknum, Hrefna Dagbjartsdóttir 2 mörk og Berglind Yngvadóttir og María Benediktsdóttir sitt markið hvor.
Þessi ferð var auðvitað sérdeilis prýðileg og fær 4 drullukökur á skemmtanakvarðanum. Þó hefði hún getað slagað upp í 5 stykki ef við hefðum slökkt á videoinu áður en setningin “ég er með þér í anda” hljómaði í fyrsta skipti af fjórum í virkilega slakri videomynd laugardagskvöldsins.
Annars frábær ferð, gott veður, skemmtilegt fólk, góður bjór, flottur fótbolti og Búllan stóð algjörlega fyrir sínu sem okkar annað heimili.
Æfing á morgun mánudag, klukkan 18:30 á Hrafnagili. Mættu eða vertu ferhyrningur!
Áfram Magni
Yfir og út
/JBK
P.S. Sigrún Björk skoraði 2 mörk í leiknum á móti Sindra.