Jæja elskurnar mínar, þá er þetta búið í bili (eða alveg fram að næsta Magnapartýi
)
Við vorum ekki alveg eins sprækar og við hefðum viljað í leiknum á móti ÍR en megum vera ánægðar með þennan árangur á móti liði sem er búið að vera að æfa fyrir þetta í allan vetur og í allt sumar. Hrefna Dagbjartsdóttir skoraði markið okkar. Það verður nú að minnast aðeins á stormsenterinn sem kom inn í liðið fyrir leikinn en hún Þorbjörg átti marga góða spretti svo við reynum auðvitað að kaupa hana fyrir næsta sumar
Inga Dís var líka alveg mögnuð í markinu og ef ég vissi ekki betur héldi ég að hún væri búin að æfa mark alla sína ævi. Allar hinar stóðu sig vel líka, enda ekki annað hægt í svona stórglæsilegu liði
Þetta sumar er búið að vera alveg Magnificent og árangur liðsins framar öllum vonum. Er svo ekki planið að æfa létt fram að áramótum (kannski einu sinni í viku á Þelamörk eða Hrafnagili) og taka svo á þessu eftir áramót og jafnvel skrá okkur í deildarbikarinn ?
Það er allavega alveg á hreinu að Magnagellur ætla að hittast á að minnsta kosti 6 vikna fresti og gera eitthvað skemmtilegt saman svo þið skulið halda áfram að fylgjast vel með síðunni.
Laugardaginn 16. sept. er svo stefnt á ruuuusalega uppskeruhátíð hjá okkur með óvissuferð og öllum pakkanum…
Þannig að þessi vetur mun ekki gefa sumrinu neitt eftir í skemmtilegheitunum
Takk fyrir sumarið, þetta var alveg meiriháttar gaman!
Kv.
JBK
P.S. Hverjar ætla með mér í BootCamp sem hefst á afmælisdegi Mola ???