Þá er þetta að skella á , Lokahófið okkar umtalaða…..Mæting er stundvíslega á hringtorgið fyrir neðan Tröllaborgir við þar til gert skylti klukkan 13:31, ALLS ekki seinna. Þar verður dregið í lið í ratleikinn okkar sem hefst svo í Kjarna klukkan 14:00 að staðartíma. Eftir brjálað sprell og læti í Kjarna verður þorstanum svalað með nokkrum köldum í boði Víking…Þar á eftir verða lúin bein hvíld og slakað á í pottinum á Bjargi… Með rúsínu putta og soðnar tær byrja svo Magna gellur að hafa sig til allar saman á Bjargi, fara í betri fötin og setja upp andlit, það er að segja gera sig enn fallegri en venjulega ef svo er hægt enda með eindæmum fallegar þessar konur í kvennaliði Magna;) Þegar drottningarnar eru klárar, segjum svona um 8-leytið, svo lengi sem allar hafa haft rænu til að taka sig til á þessum tíma , þá höldum við glaðar í bragði á Strikið, þar sem við borðum saman dýrindismáltíð sem við fáum á afar nettu verði eða það segir Sigrún allavega, treystum því
Þar verður smá glens og frjálst er að versla á barnum að vild..en ætlumst við þó til þess að allir sýni sóma sinn í því að haga sér eins og fulloðið fólk..Með pakkaða maga og sáttar með lífið tekur við gleðskapur mikill heima hjá gestgjafanum okkar sem að þessu sinni er leynigestgjafi….Það er skylda að vera þar til 00.19…þá má fólk gera það sem það vill, formlegri dagskrá lokið en það er ekki þar með sagt að gleðin sé úti, og að sjálfsögðu reynum við að halda hópinn, því dansstaðir bæjarins hafa boðið okkur velkomnar og ætla að hafa opið til 04:00 og jafnvel aðeins lengur svo að við náum pottþétt að slíta ballskónum okkar
Það sem þarf að hafa meðferðis er:
- Áfengi
- Föt í ratleik, stígvél ef það rignir og hlýrabol ef það er sól
- Áfengi
- Sundföt, handklæði og hreinar naríur
- Áfengi
- góða skapið
- Áfengi
- Snyrtidót
- Góða skapið
- Áfengi
- Fín föt
- Áfengi
- Pening
Kostnaður við þetta allt saman er 1200 krónur og einnig þarf hver og ein að borga fyrir sinn mat á Strikinu. Til þess að taka þátt þarf að leggja 1200 krónur inn á Magna reikninginn okkar…
Sjáumst eiturhressar á hringtorginu