9 stelpur mættu á æfingu í gær og þar var ákveðið að halda jólagleði Magnakvenna laugardaginn 9. desember. Þá er planið að hittast heima hjá einhverjum, líklega kannski heima hjá mér, borða saman, drekka saman og djamma saman
Ekki er alveg komið á hreint í hvaða formi maturinn verður en til greina kemur 3ja rétta veislumáltíð, hlaðborð, kökuveisla, pinnamatur og eflaust margt fleira sem ákveðið verður mjög fljótlega. Við munum sjá um matinn sjálfar svo við erum ekki að tala um einhverjar gríðarlegar upphæðir.
Hafið það annars gott sykurpúðar og gangi ykkur (sem eruð í skóla) vel í prófundirbúningi…