Gleðilegt nýtt ár!

Er ekki málið að hefja nýtt ár með því að ákveða að vera með lið næsta sumar líka?  ;)   Ég er allavega alveg tilbúin í taumlausa gleði aftur eins og síðasta sumar og ég ætla hér með að þakka ykkur öllum, þjálfara, leikmönnum, stjórnarmönnum, stuðningsmönnum, styrktaraðilum og jafnvel mótherjum fyrir árið sem er að líða. Þetta sumar var auðvitað bara tær snilld!

Hafið það gott um áramótin og gangið hægt um gleðinnar dyr.

/JBK

Skrifað í Uncategorized. 18 ummæli »

Jólakveðja frá meistara Mola :)

sælar dömur, allar…. ég vil þakka frábbært sumar og góð kynni
megi þið hafa gleðileg jól og gott næsta ár í hverju því sem þið takið ykkur fyrir hendur, og muna að ganga í öll verkefni excited.. en aldrei anxious.
reynið ávallt að gera ykkar besta, það verður aldrei beðið um annað.
og á meðan ég er að skrifa þetta þá dettur mér í hug….

haldið áfram á sömu braut, hetjur
og hendist í bolta þegar hlýnar
og þótt þið verðið latar í vetur
þá eruð þið enn stelpurnar mínar

innilegar kveðjur og með miklu þakklæti… Doktor mole

Skrifað í Uncategorized. 12 ummæli »

Konfekt, leikur og fleira

Mjög merkileg tilkynning!

Á morgun og miðvikudaginn verðum við að skipta því með okkur að bera út konfekt í fyrirtæki fyrir Glitni og í staðinn munum við fá hjálp við að ná endum endanlega saman eftir síðasta sumar. Þetta þýðir að hver og ein…jájá ALLAR takk fyrir,  þurfa að henda 5-10 konfektkössum í fyrirtæki (eftir því hvað þið hafið mikinn tíma aflögu). Þið farið bara niður í Glitni þegar þið hafið tíma á þessum tveimur dögum og takið ykkar skammt.  Plís, ekki svíkjast um, we need this! Endilega skrifið hérna inn þegar þið eruð búnar að sjá þetta og að þið ætlið að gera þetta því annars þrufum við að fara að hringja í ykkur og ég nenni því ómögulega…

Annað mál á dagskrá er æfingaleikurinn sem við spiluðum áðan. Ég er eiginlega alveg hissa á því að útkoman hafi ekki verið betri þar sem við mættum úthvíldar til leiks, varla búnar að hreyfa á okkur rassgatið síðan síðasta sumar, en svona er lífið. Meginmurinn á liðunum var fyrst og fremst sá að annað liðið fékk búningaaðstöðu í Hamri en hitt ekki og ég tel að það hafi gert gæfumuninn, en Moli hefur þegar beðist afsökunar á því fyrir hönd íþróttafélagsins Þórs, enda vel upp alinn strákurinn ;)   Annað sem skipti þó nokkru máli var formið og þá erum við að tala um aðeins og lélegt form hjá okkur, og þriðji og líklega veigamesti munurinn var að þær hafa eitt stykki Rakeli Hönnudóttur superwoman, sem við ráðum bara ekkert við.

En samt sem áður er gaman að fá að spila smá og mér sýndist nú þegar allt kom til alls að við myndum hafa þetta á forminu því útkoman var langbest úr 3. leikhluta ;)   Ef leikmenn liðsins hefðu líka verið örlítið minna kynþokkafullir síðasta sumar hefðum við kannski getað teflt fram fleiri leikmönnum, ENGAR FLEIRI ÓLÉTTUR TAKK ;)

En er ekki málið að hvíla boltann á morgun? Ég get allavega ekki verið með, er með stokkbólgið hné sem vill ekki hreyfa sig aftur fyrr en í fyrsta lagi eftir jól ;) En þær sem eiga eftir að borga mega endilega koma peningnum til mín annað kvöld í íþróttahúsið í Glerárskóla því ég þarf að borga þetta fyrir jól og mig vantar helling upp á þó við fáum þetta á fínu verði…

Mbk

JBK

P.S. Katrín Kristjánsdóttir á skilið sérstakt hrós fyrir fyrsta leikinn sem hún spilar á stórum velli, en að mínu mati var hún maður leiksins í Magnaliðinu…

Skrifað í Uncategorized. 15 ummæli »

Æfingaleikur við Þór/KA

Á mánudagskvöldið 18. des. munu Magnaðar knattspyrnukonur spila æfingaleik við Þór/KA klukkan 20:30 í Boganum. Þetta er kærkomið tækifæri fyrir okkur til að endurnýja kynnin frá því í sumar og auðvitað er alveg nauðsynlegt að ALLAR mæti í þennan leik sem mögulega komast. Ég byrjaði að hringja í einhverjar áðan en sá að það myndi taka alltof langan tíma frá því að gera aðeins upp eldhúsið svo ég ákvað að henda þessu bara hérna inn og láta ykkur svo hringjast á. Mæting er sem sagt í Bogann svona 19:45, byrjum á því að rífast um búningana og svo skellum við okkur í lauflétta upphitun að hætti Jónínu íshokkídrottningar.

Þær sem hafa þegar boðað komu sína eru:

Jónína, Sandra Sigm., Berglind, Sæa, Jóna Benný og Kata V. (ef hún fær frí í vinnunni). Eins og talnaglögir lesendur sjá eru þetta aðeins 6 kvikindi svo það vantar að minnsta kosti 5 í viðbót svo dæmið gangi upp, annars erum við náttúrlega allar í svo hriiiikalegu formi að við ættum alveg að geta spilað 11 bara ;) Þær sem ætla að vera með verða að skrá sig fyrir næstkomandi laugardagsmorgun hérna í kommentunum eða hringja í mig…

Talandi um from…ég nefndi það við Mola okkar áðan að formið hafi versnað um u.þ.b. 50 % frá því í sumar og þá var hann snöggur að reikna það út að núna væri formið þá nákvæmlega 0,7 % hjá liðinu :P

En að öðru….við Ásdís áttum gott maraþonspjall í íþróttahúsinu í staðinn fyrir æfingu í gær. Djöfulli eruði slappar að mæta ekki maður ;)

Ég hitti Katrínu Vilhjálmsdóttur markamaskínu líka í gær og við erum með stórfengleg plön um frægð og frama næsta sumar. Kata er reyndar þegar orðin nokkuð fræg eftir að mynd birtist af henni í bókinni Íslensk knattspyrna sem kom út núna fyrir jólin, mæli með því að þið kíkið á gelluna, en ég þarf hinsvegar að gera eitthvað meira í mínum málum ;) Nú verður byrjað snemma að safna í lið fyrir næsta sumar svo við pirrum ekki alla með því að vera á síðasta snúningi með allt á hverju ári. Ég býst við að allavega meirihluti sóknarinnar og varnarinnar frá því í fyrra séu nokkuð klárar fyrir sumarið en það eru skiljanlega ekki allar tilbúnar að lofa einhverju. En við skoðum þetta betur einhverntíman eftir áramót…
Nú er bara einn séns til að mæta í bolta á þessu ári og það eiga mjög margar sem voru með í innanhússboltanum eftir að borga, endilega klárið það á næsta þriðjudag…

/JBK

Skrifað í Uncategorized. 21 ummæli »

Jóla hvað?

Á laugardaginn verður jólagleði Magnakvenna með tilheyrandi skemmtiatriðum og ofáti.  Nú þarf að finna út úr því hverju er best að troða í sig til að hita upp fyrir kræsingarnar um jólin. Mér sýnist á öllu að við verðum frekar fáar í þessu svo ég var að hugsa hvort það væri ekki bara sniðugt að hafa svona kökur/heita rétti/smárétti eða eitthvað þannig einfalt og skemmtilegt. Það yrði frekar ómerkilegt hlaðborð hjá okkur ef við ætluðum að vera með jólahlaðborð sýnist mér. Segið annars hvað ykkur finnst um þetta mál í kommentunum…

Ég get boðið heim til mín en ég lofa ekki að vera búin að jólaskreyta, eða þrífa eftir brálæðistörnina í skólanum undanfarið því ég verð frekar bissí fram að laugardagskveldi ;)   En þið getið þá bara mætt í stigvélum og vaðið skítinn hérna ;)

Jebbs, látið endilega vita af ykkur í kommentum, hvort þið ætlið að kíkja, hvort þið ætlið að koma með eitthvað og hvað þið mynduð vilja koma með…:)

Kv.

Jóna Benný

Skrifað í Uncategorized. 13 ummæli »

Fótbolti á þriðjudegi…

Sælar,

Hverjar ætla að mæta í bolta á morgun?

Við þurfum að ákveða í tímanum á morgun hvort við ætlum að halda þessum tímum eftir áramót því það eru víst einhverjir fleiri sem vilja líka komast að svo ef þið hafið eitthvað um þetta mál að segja þá er bara að mæta eða skrifa hérna á síðuna :)

Skrifað í Uncategorized. 10 ummæli »