Mæting í kvöld…

Fússball 20-21 í Glerárskóla

Koddu eða vertu ferhyrningur…

/JBK

Skrifað í Uncategorized. 6 ummæli »

Hittingur í kvöld…

Sælar…

Ég ætla bjóða ykkur heim til mín í kvöld. Það verða engar sérstakar veitingar í boði og ég verð ekki búin að þrífa því ég ætla ekki að gera neitt í dag nema hanga yfir handboltanum ;)

Ég á heima í Hafnarstræti 86, grænt hús við hliðina á Passion og á móti gamla tónlistarskólanum. Dyrabjallan niðri er biluð svo þið þurfið að bjóða ykkur sjálfar inn um útidyrnar á húsinu og líka inn um fyrstu dyrnar eftir að komið er inn. Svo vippið þið ykkur bara upp stigann og upp á aðra hæð og bankið á eina af þremur hurðum þar… annað hvort svara ég eða enginn ;) Ekkert mál ;) Þið getið líka hringt í mig: 869 8650 ef þið eruð í tómu tjóni og lendið í slæmu tilfelli af ákvarðanafælni þegar kemur að því að banka á dyrnar.

Ég hef enga sérstaka tímasetningu í huga. Ég verð heim frá klukkan 17:00 svo þið getið komið hvenær sem er eftir þann tíma :)

Ásdís, Lísbet og Alma komast ekki en skyldumæting er fyrir aðra…

Skál

/JBK

Skrifað í Uncategorized. 9 ummæli »

Framundan…

Föstudagskvöld: Laugamót

Laugardagskvöld: Peeeeertý

Skrifað í Uncategorized. 16 ummæli »

1. deild kvenna 2007

Í dag skráðu Hamrarnir lið til keppni í 1. deild kvenna á Íslandsmótinu 2007 auk þess sem liðið mun spreyta sig í bikarkeppninni líka.Vonandi eruð þið allar sáttar við þetta, en enginn tími gafst til að halda fund og ræða þessi mál þar sem við fengum ekki frestinn sem við bjuggumst við til að skrá lið í Íslandsmótið svo við Inga Dís tókum þessa ákvörðun eftir að hafa velt þessu vel fyrir okkur og ráðfært okkur við ýmsa aðila og örfáa leikmenn liðsins líka.

Meginástæðan fyrir þessu er sú að ekki líður á löngu þar til Hamrarnir verða aðildarfélag að ÍBA og mun þá verða mun auðveldara fyrir okkur að fá æfingaaðstöðu og annað slíkt, auk þess sem þeir eru að gera flotta hluti með upbyggingu á nýju liði sem gæti verið gaman fyrir okkur að taka þátt í líka.

Við munum auðvitað allar sakna Magna og þökkum þeim og sérstaklega Reimari kærlega fyrir samstarfið síðastliðið sumar og fyrir alla hjálpina við að koma þessu liði af stað.

Planið er svo að hefja nýtt tímabil með því að halda “Hamrapartý” næstkomandi laugardag þar sem framtíðin kvennaknattspyrnu á Íslandi verður ákveðin í bland við umræður um mannlega tilvist. Í lokin gætu svo brotist út slagsmál svo þetta er eitthvað sem þið viljið ekki missa af kæru vinkonur…

Mbk
Jóna Benný (sem er að fara að æfa sig fyrir næsta laugardagskvöld með því að stunda hefðbundnar glasalyftingar í kvöld. Á ég við vandamál að stríða???)

Skrifað í Uncategorized. 25 ummæli »

Bolti í kvöld…

Ætla ekki einhverjar að mæta?

Skrifað í Uncategorized. 19 ummæli »

Allskonar og ekki neitt var ákveðið á fundi síðasta þriðjudag. Ég held að niðurstaða hafi náðst með að skrá lið á Íslandsmótið, en ekki er komið á hreint hvaða lið verður skráð á mótið.

Rætt var um þann möguleika að reyna að semja við líkamsræktarstöð um afslátt fyrir liðið…ég held að engin niðurstaða hafi komið í það heldur.

Þjálfaramálin voru rædd fram og tilbaka. Engin niðurstaða komst í það en þó voru tveir menn sem virðast sérstaklega koma til greina.

Æfingatímar og fjöldi æfinga á viku er líka eitthvað sem ekki er alveg á hreinu eftir þennan fund.

Planað var að fara á Laugamótið. En það er algjörlega í lausu lofti hversu margar hafa áhuga á að fara og hvort við myndum skrá eitt eða tvö lið til keppni.

Mótið fer fram í höllinni við Tjörnina þann 26. janúar (kvennalið) og spilað er með batta og fjórir leikmenn inn á í hvoru liði í einu. Spilað er eftir battareglum.

Keppnisgjald er 6000 kr. á lið. Síðasti skráningardagur er 23. janúar.

Fyrir þann tíma væri gott að vita hverjar ætla að fara á mótið :P

/JBK

Skrifað í Uncategorized. 16 ummæli »

Jæja pæjur, er ekki málið að fara að byrja að sprikla aðeins. Við eigum bókaða tíma í Glerárskóla á þriðjudögum og þætti mér vænt um að þær sem eiga eftir að borga fyrir tímana sem voru fyrir áramót geri það á þriðjudaginn því Sigrún Björk, Ingunn, Lísbet, Kata V. og Ásdís voru þær einu sem borgðuðu fyrir áramót og þess vegna þurfti ég að borga 10 þúsund krónur úr eigin vasa fyrir þessa tíma.

Eruð þið ekki til í að vera mættar og tilbúnar klukkan 19:15 á þriðjudaginn og þá getum við rætt aðeins um það sem koma skal því við þurfum að vera búnar að skrá okkur (ef við ætlum að vera með) í Íslandsmót fyrir 20. jan. og þá eigum við eftir að gera eitthvað í liðamálum (Magni eða eitthvað annað) og svo er líka Laugamótið framundan og þar verðum við auðvitað með lið.  Ég hef líka fengið ábendingar um þjálfara og við þurfum aðeins að ræða þau mál…

Kommentið ef þið ætlið að mæta… :)

Kv.

JBK

Skrifað í Uncategorized. 16 ummæli »