bolti

Jæja stelpur

stjórnin að vinna sína vinnu, við erum búnar að fá tíma í Ka-heimilinu tvö næstu sunnudagskvöld klukkan 20.00 ;) HVernig lýst ykkur á það gellur????

 Endilega commenta á þetta ;)

Skrifað í Uncategorized. 13 ummæli »

Hitt og þetta bara!!!

Jæja skvísur!!

Það styttist í Húsavíkurmótið og það þarf að fara komast á hreint hverjar ætla með, þær sem hafa gefið 100% já eru: Þóra, Guðrún Soffía, Hrabba, Jóna Benný, Inga Dís, Berglind, Sæa, Ásdís, Alma, Lísbet og Stína ef barn og vinna leyfa ;) og Stefanía ef vinna leyfir ;) Þannig að þá eru komnar 10 vonandi 12 ;) Sorrý ef ég er að gleyma einhverjum, þið megið þá bara lemja mig á næstu æfingu, ekki fast samt ;)

Stefnan er sett á að komast einu sinni í stærra hús þar sem línur eru á mótinu, við spiluðum með línur í kvöld og það gekk nú bara nokkuð vel sko ;)

Það vöknuðu ýmsar spurningar á æfingunni í kvöld:

  • Hvernig verður skipt í lið?
  • Hver verður annar í marki en Inga?
  • Hvernig á að fara?
  • Hvað kostar?
  • Hvað verða leikirnir langir?

Man ekki fleiri en málið er þannig að ég get ekki svarað þessum spurningum, þannig að ég set þetta í hendurnar á ykkur ;) En við skulum endilega fara reyna ákveða eitthvað með þetta, eins og alltaf í hóp verða aldrei allar 100% sáttar, þannig er það bara og þannig verður það alltaf….en við erum svo æðislegar að það reddast alltaf allt ;) ;)

Svo var ýmislegt annað rætt eftir æfingu og þau mál verða öll tekin fyrir hjá okkar frábæru stjórn, sem mun von bráðar fara á fund með meistaraflokki karla (gaman að skrifa þetta hahaha ) og þá fara málin að skýrast enn betur ;) Og þá verður svo fundur hjá okkur Hamragellum þar sem allar mæta og fá að leggja nokkur orð í belg ;)

Jæja meira er ekki í fréttum hjá okkur í kvöld, við viljum minna alla á að fygljast með síðunni, sem kemur til með að verða uppfærð mun oftar það sem eftir er ;)

pink-G

Skrifað í Uncategorized. 7 ummæli »

Lítið Magnabarn fætt :)

Birna og Tóti eru búin að eignast strák og við lítum auðvitað þannig á málið að við eigum pínkulítið í honum líka þar sem hann var nú búinn til í miðju Magnaæðinu ;) Innilegar hamingjuóskir frá okkur öllum :*

Ég skráði 2 lið á mótið svo við eigum þokkalega eftir að meika það ;)

Einhverjir voru að tala um æfingu kl. 9 á laugardagsmorgun… er það plan eða?

/JBK (kem ekki á æfingu á lau. því það er Goðamót hjá stelpunum mínum)

Skrifað í Uncategorized. 9 ummæli »

Mót á Húsavík!

Eftirfarandi póst fékk ég sendan frá Húsavík.

Sælar allar.

Nú er búið að negla niður dagsetningu en mótið verður haldið 17. mars frá kl. 12:00-17:00/18:00 (fer eftir því hvernig gengur)

Stefnt er að því að vera með tvo 4 liða riðla og spila 2 x 8 mín.

5 leikmenn eru í hverju liði (4 útispilarar og einn markmaður)

Spilað er í höllinni á Húsavík (innanhús)

Ég veit ekki hvað þið ætlið að koma með mörg lið en geri ráð fyrir að liðin verði eftirfarandi:

Tindastóll = 2 lið

Höttur = 2 lið

Harmarnir = 1 lið

Völsungur = 3 lið

Samtals 8 lið

Ég bið ykkur að staðfesta komu ykkar svo hægt verði að raða í riðla.

Auðvitað er stefnt á að hafa gaman að þessu og njóta þess að eyða deginum saman…..svona á vordögum :-)

Sko (hér tekur Jóna við og þetta er ekki lengur hluti af póstinum), það er langskemmtilegast að vera 6-7 í svona liði þannig að maður geti bara rétt farið út af og pústað og skipt svo aftur inn á því þetta eru stuttir leikir. Ég er komin með svolítið mikið leið á því að skrá okkur í eitthvað og skipuleggja eitthvað svona og svo stendur maður í tómu stappi við að ná í lið eða fá mannskap í fjáröflun svo það væri gott að fá endanlega skráningu hérna inn fyrir miðvikudag. Ég veit alveg að eitthvað gæti komið upp á og allt það og við reddum því þá en þær sem ekki skrá sig verða ekki teknar með og þær sem skrá sig verða að reyna að standa við það, þetta verður bara að vera þannig að fólk fari að taka smá ábyrgð í þessu liði. Við ættum alveg að ná í tvö lið (náum vonandi að redda þjálfara með okkur sem myndi þá skipta í liðin) og ef fleiri en 10 skrá sig þá skráum við 2 lið til keppni.

Skráið ykkur í kommentin…

Kveðja

JBK sem ætlar með…

Skrifað í Uncategorized. 23 ummæli »

Sunnudagsbolti!

Æfing á morgun, sunnudag, klukkan 10:30.  Ætlum að hittast á Lundarskólavelli þvílíkt ferskar ;)

5 stelpur þurfa líka að mæta í fjáröflun á miðvikudag klukkan 8 um morguninn. Strákarnir eru svo almennilegir við okkur að leyfa okkur að vera með í vörutalningu í Rúmfó og það er alveg nauðsynlegt að við mætum í þetta. Við Inga Dís ætlum allavega að mæta og vonandi sjá þrjár aðrar sér fært að vera með…

/JBK

Skrifað í Uncategorized. 10 ummæli »

Oleoleoleole ;)

Nýr leikmaður kom á æfingu hjá Hömrunum í kvöld. Það var engin önnur en Guðrún Soffía Viðarsdóttir en hún að baki skrilljón landsleiki og við erum að sjálfsögðu alveg hrikalega ánægðar með að fá hana. Fleiri nýir leikmenn hafa líka komið að undanförnu sem við erum að sjálfsögðu líka mjög stoltar yfir að hafa fengið til liðs við okkur, það eru til dæmis, Hanna Sigrún, Ester, Thea, Erla, Stína og fleiri og fleiri :) Þessi hópur verður alveg ruuuuusalegur í sumar og þið þarna í hinum liðunum skulið bara fara að passa ykkur ;) Hehe

Ungar-Gamlar leit ekki vel út á tímabili og mig minnir að einhverntíman hafi staðan verið 5-0 fyrir “kjúklingunum” en gamlar tóku þetta á forminu og stóðu að sjálfsögðu uppi sem sigurvegarar…. ;)

Mér finnst eiginlega að við ættum núna að hætta að spila ungar/gamlar… Ég vil hætta á toppnum og svo lýst mér heldur ekkert vel á Guðrún Soffía/Tóta P blönduna í ungum ;)

Er einhver til í bolta úti á fimmtudaginn kl. 18:00 eða eigum við að hittast á laugardaginn kl. 12:00 ?

Skrifað í Uncategorized. 27 ummæli »

Æfing á þriðjudag…

Á ekki að láta sjá sig?

Ungar – gamlar klikkar ekki og ég hef ákveðið að vera algjörlega óþolandi þangað til ungar taka þetta… En sá tími er vonandi langt undan ;) Múhahaha

Þetta var náttúrlega líka þvílíkt rúst þarna á síðustu æfingu ;)

Það er svo bannað að hefna sín og skrifa einhvern ósóma hérna ef svo ólíklega vill til að gamlar tapi einhverntíman… ;)

/JBK

Skrifað í Uncategorized. 12 ummæli »

Ungar voru aldeilis teknar í kennslustundí gær!Ussuss…Þóra, þetta var rosalegt, og þú svona ung ;)

Nú á að fara að hreyfa á sér rassgatið, mæting í Interval í Átaki klukkan 6:15 á morgun fimmtudag (allavega þið sem viljið og eigið kort þar). Ég held að ungar ættu allavega að íhuga það vandlega að mæta í þessa tíma;)

Næsta æfing er á sparkvellinum við Lundarskóla klukkan 16:00 á laugardaginn…koma svo!

Skrifað í Uncategorized. 10 ummæli »

Er ekki málið að rífa þetta aðeins upp!

Nú er einmitt rétti tíminn til að rífa sig upp af rassgatinu og fara að gera eitthvað af viti. (Þetta kemur nú úr hörðustu átt þar sem ég er ekki búin að mæta á æfingu í tvær vikur I know)

Ég hitti eina magnaða í gær og við vorum sammála um að við þyrftum að setja aðeins meiri kraft í þetta hjá okkur og fara að hossast af stað í einhverjar æfingar. Mig langar líka að setja á eina helgaræfingu á einhverjum sparkvelli (Lundarskólasparkvellinum sko því hann er beisiklí úti í garði hjá mér ;) ). Eruð þið ekki til í það?

En allavega… verður einhver mæting á þriðjudaginn?

/JBK

Skrifað í Uncategorized. 15 ummæli »