Flott veður í dag og ég bara trúi ekki öðru en það verði metmæting í bolta í Lundarskóla klukkan 17:30 í dag
/JBK (mæti)
Flott veður í dag og ég bara trúi ekki öðru en það verði metmæting í bolta í Lundarskóla klukkan 17:30 í dag
/JBK (mæti)
Vissuð þið að pink-goalie á afmæli í dag?
Birna á reyndar ekki afmæli í dag svo ég viti en hún er nýbúin að eiga yndislega fallegt barn svo það er ágætt að hafa mynd af henni líka

Þá er komið að því að við þurfum að borga fyrir tímana í Glerárskóla í janúar, febrúar og mars. Þetta verða 2000 krónur á mann og eins og talað var um í upphafi þurfa allar að borga 2000 kr. sama hvað þið mættuð oft (nema náttúrulega ef þið mættuð aldrei þá þurfið þið ekkert að borga
)
Það væri best ef þið mynduð leggja peninginn inn á reikninginn okkar, reikningsnúmerið er á æfingagjaldasíðunni (athugið samt að þetta eru æfingagjöldin frá því í fyrra, við eigum eftir að skoða þetta fyrir sumarið). Það þarf lykilorð inn á síðuna svo ef þið hafið eruð ekki með það þá getið þið haft samband við mig, Ingu eða einhvern sem var í fyrra því allar ættu að vita lykilorðið
Kveðja
Jóna
Ég ætla bara að minna á æfingu á mánudag klukkan 19:31 á sparkvellinum við Giljaskóla.
/JBK
Það var alveg brjáluð mæting á æfingu áðan í rokinu. Við mættum 5 sem var kannski ágætt svo við gætum spilað 2 með vindi á móti þremur á móti vindi. Það þarf ekkert að fjölyrða um það hversu stórfengleg knattspyrna var spiluð þarna þennan stutta tíma sem við entumst.
Ég er búin að skrifa lista yfir leikmenn sem hafa skrifað undir félagaskipti á leikmannasíðunni.
Það væri frábært ef fólk myndi síðan skrá sig í bolta á laugardagsmorguninn svo maður þurfi ekki að rífa sig upp fyrir allar aldir ef enginn er að fara að mæta þarna.
Koma svo…
/JBK
Vegna áberandi formleysis á innanhússmótinu um helgina hefur æfingum verið fjölgað í hvorki meira né minna en þrjár á viku. Í kvöld verður æfing á sparkvellinum við Giljaskóla klukkan 19:31. Eru ekki einhverjar sem ætla að mæta þangað?
Hamrarnir 2 komust ekki í úrslit á innanhússmótinu en stóðu sig engu að síður mjög vel því þær voru í öllu sterkari riðli en Hamrarnir 1. Hamrarnir 1 unnu alla leikina á mótinu þangað til kom í úrslitaleikinn en þær töpuðu honum stórglæsilega. Allskyns afsakanir eru fyrir þessu tapi og má lesa þær í kommentum á færslunni fyrir neðan. Nú verður allt sett í gang svo við lendum ekki í þessu á lokamínútunum í sumar
Strákarnir okkar eru hinsvegar alveg að meika það og unnu báða leikina sína í Lengjubikarnum um helgina, BÍ/Bolungarvík unnu þeir 4-1 og svo unnu þeir Snæfell 9-2. Áfram þeir!!!
Það er líka gaman að segja frá því að einn leikmaður kvennaliðs Hamranna hefur fengið leikheimild með liðinu og það er engin önnur en *Inga Dís Sigurðardóttir* markvörður með meiru. Á Húsavík skrifuðu 10 í viðbót undir félagaskipti og var ákveðið að það væri jafngildi þess að lofa því að spila ekki með öðrum liðum í sumar. Þar af eru aðeins 4 sem spiluðu með Magna síðasta sumar en við gerum ráð fyrir að felstar þeirra sem spiluðu þá spili líka næsta sumar. 6 nýir leikmenn eru sem sagt að bætast í hópinn, flestar úr Þór/KA en Guðrún Soffía skiptir úr ÍBV. Rósa María er búin að skipta yfir í Leikni Reykjavík en önnur félagaskipti úr hópnum hafa ekki farið fram og munu vonandi ekki gera það fyrir sumarið.
Ha det bra…
/JBK
Hérna koma uppfærð lið á Húsavíkurmótinu…
A-lið
Inga Dís í marki, Þóra og Hrabba aftari, Jóna Benný og Stína fremri. Varamenn: Guðrún Soffía, Kristín Hanna og Sæja
B-lið
Í þessu liði verður að skiptast á að vera í marki. Thea og Ester aftari, Alma og Herdís fremri. Varamenn: Ásdís, Lísbet og Heiðrún Villa
Svo er ennþá spurning með það hvort Stefanía, Kata V. og Ingunn komi með en vonandi koma þær bara allar með
Stína og Þóra fara saman í bíl, Jóna og Inga fara saman í bíl, Lísbet, Alma og Thea fara saman í bíl (2 laus pláss þar), Herdís verður á staðnum. Hrabba, Guðrún Soffía, Kristín Hanna, Sæa, Ester, Ásdís og Heiðrún…. hvernig er með ykkur? Einhver að fara á bíl eða komin með far ?
Allavega er hittingur klukkan 9:40 fyrir þær sem ætla að fá sér eitthvað gott í Bakaríinu við Brúna, annars allar að vera mættar klukkan 10 og brottför klukkan 10:15. Ég er komin með treyjur og sokka, Inga er með stuttbuxur. Munið eftir vatnsbrúsum og ég auglýsi hér með aftur eftir sjúkratöskunni. Ef hún verður ekki komin í leitirnar þá skulið þið hafa með ykkur það sem þið vitið að þið munið þurfa að nota (eins og til dæmis hælsærisplástur eða hitakrem eða hvað það er sem fólk þarf nú alltaf að nota úr svona sjúkratösku).
Til að losna við eineltið keypti ég mér í dag eitt par af innanhúsknattspyrnuskóm, mér finnst þeir nú alveg jafn ljótir og þeir gömlu en þeir eru þó allavega nýir og ég vil ekki heyra eitt aukatekið orð um að þeir séu ljótir!!!!
Hafið það gott og sjáumst á laugardaginn…
/JBK
Hittingur verður í Bakaríinu við Brúna klukkan 9:40 á laugardagsmorgun fyrir þær sem vilja fá sér eitthvað gott í gogginn og taka smá spjall áður en við leggjum af stað. Þær sem eru svo vel búnar að eiga morgunmat heima hjá sér sem þær vilja frekar snæða geta mætt klukkan 10:00 svo við getum lagt af stað klukkan 10:15.
Þær sem geta farið á bíl eru beðnar um að skrá sig hérna fyrir neðan í kommentin og einnig þær sem vantar far, en ég ætla ekki að bjóða mig fram í það verkefni að keyra þar sem ég gæti villst á minn einstaklega klaufalega hátt.
Við verðum búnar að redda treyjunum frá Hamrastrákunum, við komum líka með 13 stuttbuxur þannig að einhverjar mega endilega koma með stuttbuxur ef þær eiga… Ég á til dæmis 4 stk. af svörtum stuttbuxum svo það ætti kannski að nægja okkur
Við komum líka með nokkur sokkapör en þið sem eigið svarta sokka megið endilega kippa þeim með því væntanlega erum við ekki með nóg af sokkum handa öllum.
Hér með er líka auglýst eftir sjúkratöskunni okkar… er einhver með hana heima hjá sér?
/JBK
Leikjaplan sumarsins er komið og ég uppfærði líka fleiri síður… Til dæmis er þarna tillaga að æfingum sem myndu byrja í næstu viku því síðasta innanhússæfingin er núna á þriðjudaginn.
Athygli vekur að á tæpum mánuði verða 8 leikir hjá okkur og það vill svo skemmtilega til að það er akkúrat fyrsti mánuðurinn svo það er eins gott að maður verði kominn á tærnar strax í byrjun
/JBK