Bikarleikur á morgun…

Jæja stelpur… þið verðið að vera snöggar að skrá ykkur í leikinn á morgun því í kvöld kemur inn hópur og byrjunarlið frá þjálfara vorum. Lagt verður af stað frá N1 á Leirunni klukkan 15:30 á rútu því við erum svo miklir greifar. Það er ekki alveg komið á hreint hvað rútan muni kosta en við gerum ráð fyrir svona 2000 kalli eða kannski rúmlega það…

Þær sem eru pottþéttar eru: 1. Inga Dís, 2. Jóna Benný, 3. Þóra, 4. Hansína, 5. Heiðrún Villa, 6. Erla Hleiður, 7. Guðrún Soffía, 8. Berglind, 9. Thea, 10. Kata V., 11. Sandra 

/JBK

Skrifað í Uncategorized. 36 ummæli »

Æfing Mánudag

Stelpur það er æfing klukkan 18.00 á vellinum hjá skautasvellinu, held að það sé bara létt æfing, kannski reitarbolti (fyrir Jónu) eða eitthvað létt allavega ;)

 6. stiga ferð lokið og fram undan er bikarleikur við Hött á miðvikudag ;) Koma svo allar að láta sjá sig..

Kv Kjulla

Skrifað í Uncategorized. 19 ummæli »

Leiknir F. 1 – 6 Hamrarnir

Það var aldrei spurning hver myndi vinna leikinn í dag því Hamrastelpur voru algjörlega að meika það á köflum þó stundum hafi þetta nú aðeins dottið niður hjá okkur… en bara smá!

Strax á 10. mínútu skoraði Heiðrún Villa eftir sendingu frá Guðrúnu Soffíu inni í teig og afgreiddi hún boltann laglega í netið af stuttu færi. Á 28. mínútu fylgdi Hansína svo eftir þegar markvörðurinn varði fyrirgjöf frá Jónu. Á 29. mínútu skoraði Guðrún Soffía eftir flotta sendingu inn fyrir vörnina frá Hansínu og hamraði boltann í fjærhornið. Kata V. skoraði svo á 34. mínútueftir mikla baráttu í teignum eftir hornspyrnu. Leikmaður Leiknis skallaði boltann í slánna og Kata fylgdi vel á eftir.

Staðan í hálfleik var 0-4 og við frekar góðar með okkur þegar við mættum aftur til leiks og það kostaði okkur mark á 52. mínútu þegar snöggur framherji Leiknis náði í eina skiptið í leiknum að stinga varnarmenn Hamranna af sem höfðu hana í góðri gæslu allan leikinn. Við tókum þó fljótt við okkur og Jóna skoraði með skoti í fjærhornið af vítateigslínunni á 63. mínútu. Á 90. mínútu spiluðu Kata V. og Jóna sig svo í gegnum vörnina og Jóna skoraði með skoti í fjærhornið úr teignum.

Afskaplega vel spilað á köflum, boltinn gekk vel á milli manna en þó mátti sjá þreytumerki á liðinu í síðari hálfleik sem Sandra verður þó líklega búin að nudda úr mannskapnum í fyrramálið ;)

Gullkorn ferðarinnar:

Kata V. (við Önnu mömmu hennar Erlu Hleiðar): “Manstu eftir mér ég var á Kisudeild. Ég var með fjólubláa skotthúfu”

Kristín Hanna (þegar við sáum hreindýr við veginn): “Jííí mér finnst þetta ógeðslega gaman. Mér líður eins og ég sé í dýragarði”

Kata V. (í afslöppun og nuddi hjá Söndru þegar rætt var um hver ætti að sækja búningana út á snúru): ” Sá sem tekur síðasta búninginn tekur rest! “

Ásrún: “Mig langar mest í ídýfu með grasgrænu í”

Á morgun er leikur við Sindra á Mánavelli klukkan 12:00 og vonandi verður áframhaldandi velgengni hjá okkar fólki. Hamrastrákarnir unnu Neista D. í dag 4-0 í Boganum og skoraði Bjarni P. 3 mörk og Ingi 1.

Koma svooooo….

Skrifað í Uncategorized. 5 ummæli »

Smá breyting!!!

Við förum ekki á einkabílum í ferðina, heldur á rútu og þarf hver leikmaður að borga 5.500 krónur. Það er mjög lítið fyrir ferð eins og þessa því þetta eru 1000 kílómetrar og við borgum afganginn með sjóðnum okkar. Æltast er til að allir borgi fyrir ferðina við upphaf hennar því það er ómögulegt að þurfa alltaf að vera að eltast við fólk eftir á og það er ekki mikið mál að koma við í hraðbanka og mæta með peninginn!!!

Við ákváðum að fara með rútu vegna þess að við erum ekki vissar um hvernig færð verður og við erum allar komnar á sumardekk og fyrir utan það er bara hreinlega ekki gaman að keyra þessa leið :)

/JBK

Skrifað í Uncategorized. 18 ummæli »

Uppfærður hópur fyrir helgina!

Þetta er farið að líta svoooooo vel út hjá okkur fyrir helgina (nema kannski veðrið) ! Toppmannskapur og toppferð framundan :)

Þær sem eru klárar í leikina eru: 1. Inga Dís, 2. Jóna Benný, 3. Guðrún Soffía, 4. Heiðrún Villa, 5. Berglind, 6. Kristín Hanna, 7. Ásrún, 8. Sandra Sigm., 9. Kata V. 10. Stefanía, 11. Thea, 12. Sigrún Sigm. 13. Erla Hleiður, 14. Rakel 15. Sæa í fyrri leiknum 16. Hansína í fyrri leiknum.

Kata V. Sandra Sigm. Inga Dís og Villi fara á bíl. Jóna, Hansína og Sæa þurfa ekki far…

Kristín Hanna ætlar að smyrja  samlokur ofan í liðið í Matur og Mörk og við Inga Dís ætlum að versla kvöldsnarl fyrir laugardagskvöldið og morgunmat fyrir sunnudaginn. Planað er að borða á Fáskrúðsfirði áður en við förum á Höfn og líklega munum við borða eitthvað á Höfn eftir leik á sunnudag.

Lagt verður af stað frá N1 á Leiru klukkan 10:30, mæting er ekki seinna en 10:15.

/JBK

Skrifað í Uncategorized. 21 ummæli »

Plan vikunnar og hin hliðin :)

Þar sem allir (Stefanía ;) ) virðast ekki hafa tekið eftir því að það er fundur í kvöld þá er ágætt að setja hérna inn plan vikunnar :)

Þriðjudagur:

18:30 Myndataka, mæting í KA-heimilið

19:30 Fundur á Strikinu, mjög mikilvægt að mæta

Miðvikudagur

20:30 Mæting á Shell (Gellunesti) og æfing á Árskógssandi eða strönd eða eitthvað þannig… (eins gott að Milan verði búnir að gera út um leikinn á þessum tímapunkti ;) )
Fimmtudagur

18:30 Mæting á Shell (Gellunesti) og æfing á Árskógssandi eða strönd eða eitthvað þannig…

Laugardagur

Mæting 10:15 á N1 Leiru

10:30 Lagt af stað á Reyðarfjörð eða Fárskrúðsfjörð

16:00 Fyrsti leikurinn okkar í Íslandsmótinu í sumar við Leikni F.

18:00 Keyrt á Höfn

Sunnudagur

14:00 Leikur við Sindra á Höfn

Þær sem eru klárar í leikina eru: 1. Inga Dís, 2. Jóna Benný, 3. Guðrún Soffía, 4. Heiðrún Villa, 5. Berglind, 6. Kristín Hanna, 7. Ásrún, 8. Sandra Sigm., 9. Kata V. 10. Stefanía, 11. Thea, 12. Sigrún Sigm. 13. Sæa í fyrri leiknum 14. Hansína í fyrri leiknum..

Einhverjar eru athuga hvort þær sleppi ekki úr vinnu og svoleiðis…

Þær sem fara á bíl eru Inga Dís og Sandra Sigmunds. Ég þarf ekki far því ég fer á bíl en það er ekki hægt að fá far hjá mér þar sem ég verð líklega eftir fyrir austan. Það vantar allavega einn bíl í viðbót, er ekki einhver sem getur reddað því? Það var eiginlega regla í fyrra að maður þurfti að redda sér sjálfur og við Inga sjáum ekki um að redda fólki fari á leikina svo það þurfa allir að taka smá ábyrgð á því að komast á staðinn :)

Ég setti inn hina hliðina hjá sjálfri mér til að koma þessu aftur af stað… Ég ætla að leyfa mér að skora á þrjár svo þetta gangi eitthvað hjá okkur.

Ég skora á handboltagellurnar Ingu Dís, Erlu og Kötu V. :)

Skrifað í Uncategorized. 45 ummæli »

Smá updeit ;)

Jæja stelpur það styttist allsvaðalega í fyrstu leikina okkar ;) Sem þýðir bara það að það verða allar sem mögulega komast að mæta á æfingar í næstu viku, verðum að vera duglegar fram að leikjum ;)

Annað mál á dagskrá er hverjar ætla með austur helgina 26 og 27 maí???? og hverjar af þeim sem komast með ætla að fara á bíl??? Endilega láta vita sem fyrst, verðum allavega að ná í lið ;)

Þriðja mál á dagskrá er myndatakan sem verður á þriðjudaginn upp á ka-svæði klukkan 18. 30 akronallar að mæta þangað og eftir myndatökuna verður fundur sem er eiginlega skylda að mæta á, ef ég má vera kröfuhörð ;)

Ef það er eitthvað þá bara bjalla í mig eða Jónu gellu ;)

*** Þær sem koma í leikina um helgina: 1. Inga Dís, 2. Jóna Benný, 3. Guðrún Soffía, 4. Heiðrún Villa, 5. Berglind, 6. Kristín Hanna, 7. Ásrún, 8. Sandra Sigm., 9. Kata V. 10. Stefanía, 11. Thea, 12. Sæa í fyrri leiknum..
Koma svo stelpur… þetta er sko 11 manna bolti ;)

Skrifað í Uncategorized. 39 ummæli »

Seinkun á myndatöku

Stelpur + Villi

Myndatökunni er hér með frestað fram á þriðjudag/miðvikudag. Staður og tími verður auglýstur hér á síðunni mjög fljótlega. Ástæðan fyrir þessu að það eru rosalega margar í burtu og þess vegna leiðinlegt að hafa myndatöku þegar vantar þorrann úr liðinu ;)

Vonandi að allar sjái þetta áður en þær skunda af stað í bogann….en það er að sjálfsögðu skylda að drífa sig í bogann og hvetja kallana/strákana okkar ;)

Skrifað í Uncategorized. 4 ummæli »

Myndataka!

Á fimmtudaginn klukkan 16:00 (eftir leikinn hjá strákunum sem þið mætið auðvitað allar á ;) ) er myndataka fyrir leikskránna. Mæting er í Bogann (með hvítu búningana) og það er mjög mikilvægt að sem flestar mæti. Ef þið þekkið ljósmyndanörd væri gott að þið mynduð boða viðkomandi á staðinn til að taka myndirnar. Villi og Una mæta auðvitað líka og láta taka mynd af sér :)

Kv.

JBK

Skrifað í Uncategorized. 17 ummæli »

Alveg að meika það í boltanum…

Æfingaleikurinn fór ekki ekki alveg jafn vel og flestir voru eflaust að vona fyrir leikinn. En samt sem áður var margt mun betra en í síðasta leik og þá sérstaklega að boltinn gekk stundum á milli manna án þess að við bombuðum bara fram þar sem við eigum yfirleitt ekki mikla möguleika á að vinna sprettina. Við áttum meira að segja nokkrar tilraunir til að skjóta á markið svo þetta er allt að koma hjá okkur ;) Miðja án Þóru er álíka nothæf og fiðurlaus fugl, bensínlaus bíll eða karlmaður án sprellans svo við vorum ekki að gera gott mót þar. Vörnin (að meðtöldum markverðinum) var hinsvegar að standa sig mjög vel og er líklega það eina sem við þurfum ekki að hafa stórkslegar áhyggjur af í sumar. Það er hinsvegar ekki hægt að ætlast til að bara vörnin klári leikina fyrir okkur og þegar aðrar stöður verða komnar í gott lag þá verðum við algjörlega ósigrandi ;) Er þaggi ????

/JBK

Skrifað í Uncategorized. 16 ummæli »