Sælar Stúlkur
Við í Hömrunum höfum tekið að okkur að grilla pylsur fyrir Húsasmiðjuna á laugardaginn milli 11 og 14. Við þurfum bara að að vera 4-5 stelpur.
Við þurfum á þessu að halda fjárhagslega.
Koma svo stelpur allir sem komast láta vita.
SGS
Sælar Stúlkur
Við í Hömrunum höfum tekið að okkur að grilla pylsur fyrir Húsasmiðjuna á laugardaginn milli 11 og 14. Við þurfum bara að að vera 4-5 stelpur.
Við þurfum á þessu að halda fjárhagslega.
Koma svo stelpur allir sem komast láta vita.
SGS
Jæja, góðri pásu er fljótlega lokið og þá mæta að sjálfsögðu allar eldhressar á æfingu klukkan 18:30 í Boganum.
/JBK
Mæting í síðasta lagi klukkan 9:45 á Akureyrarvöll… Allar sem eru búnar að boða komu sína verða að mæta svo við stöndum við samkomulagið sem var gert við leikjakonuna
/JBK
Jæja, þetta fór allavega betur en síðasti leikur á móti Völsungi, eini munurinn á liðunum var sá að þær voru að nýta sín færi en við nýttum okkar ekki.
Í fyrri hálfleik mættum við mjög sterkar til leiks og áttum hreinlega hálfleikinn frá upphafi til enda. Þær náðu að setja eitt mark á einhvern óskiljanlegan hátt eftir að Inga hafði varið vel. Við áttum fjölmörk skot á markið, óbeina aukaspyrnu og nokkur horn en náðum ekki að nýta þetta og ágætur markvörður Völsungs kom í veg fyrir að boltinn rataði inn í markið. Þær voru hinsvegar aðeins sprækari í síðari hálfleik en það er alveg hreint sorglegt að við skyldum ekki ná að leiða leikinn í hálfleik og klára þetta dæmi. Skemmtilegur leikur, flottur fótbolti og miklar framfarir hjá Hamraliðinu en nú þýðir ekkert annað en að klára tvo síðustu leikina ef við ætlum okkur í úrslit
Annars er frí fram á næsta þriðjudag en mælst er til þess að fólk noti tímann samt sem áður í að hreyfa sig eitthvað.
/JBK
Jæja þá er liðið klárt fyrir leikinn á morgun ásamt því að valinn hefur verið 16 manna hópur í þetta verkefni.
Svona er liðið:
Inga Dís er markvörður
Jónína er aftasti leikmaður
Sandra er hægri bakvörður
Sæa er fyrir framan Jónínu
Kristín Hanna er vinstri bakvörður
Hansína er hægri kantur
Jonna og Þóra eru á miðjunni
Heiðrún Villa er vinstri kantur
Jóna Benný og Guðrún Soffía eru framherjar
Bekkur: Thea, Berglind, Stefanía, Unnur og Herdís
Mæting er klukkan 17:45 á Leirunesti og lagt verður af stað ekki seinna en 18:00.
Ég man ekki alveg hverjar ætla á bíl en það verður klárlega nóg af þeim á staðnum
Nú erum við sko ekki að fara í eitthvað 13 – 0 rugl og ætlum að sjálfsögðu að taka okkur saman í andlitinu og klára þennan leik
/JBK
Ég er búin að setja myndir á netið frá gærkvöldinu…Þær eru *hérna*
Þakka ykkur annars fyrir sérstaklega skemmtilegan dag í gær. Næsta æfing er á þriðjudaginn klukkan 18:30 í Boganum. Skyldumæting á þessa síðustu æfingu fyrir Völsungsleikinn…
Fínt ef þið mynduð byrja að skrá ykkur í leikinn svo við vitum tímanlega hverjar eru tilbúnar í slaginn. Leikurinn er á miðvikudaginn klukkan 20:00 á Húsavík svo líklega leggjum við af stað um 18:00.
Kv. JBK
Þetta var alveg magnaður leikur stelpur. Miðjan átti hreinlega alla bolta og dældi þeim inn í sóknina en því miður tókst okkur ekki að nýta færin eins og vel og við vildum. Það er gaman að segja frá því að við skutum 5 sinnum í slánna og 1 sinni í stöng í þessum leik og fjöldinn allur af skotum fór rétt framhjá markinu svo þessi sigur hefði hæglega getað verið stærri. Nú er markatalan okkar allavega komin á núllið svo núna liggur leiðin bara upp á við
Jóna Benný skoraði fyrsta mark leiksins. Fékk sendingu frá Jonnu inn á miðjuna, skaut svolítið fyrir utan teig og loksins endaði þetta í markinu
Heiðrún Villa skoraði svo annað markið eftir góða sendingu innfyrir frá Hansínu á hinum kantinum. Í seinni hálfelik setti Guðrún Soffía svo tvö mörk, annað markið var nokkuð skrautlegt en markamaður Leiknis hélt líklega að boltinn væri á leið framhjá og gerði enga tilraun til að taka hann. Í seinna markinu vann Jóna boltann fyrir utan teig og sendi inn fyrir á Guðrúnu Soffíu sem kláraði með glæsilegu skoti.
Eftir leik fórum við í pottinn í KA heimilinu og það var ekkert smá notalegt að láta þreytuna aðeins líða úr sér þar. Í kvöld er svo plönuð heljarinnar Hamragleði og ætlum við að hittast klukkan 21:00 hjá Þóru og gera allt brjálað
Allir nýir og gamlir Hamrar eru að sjálfsögðu velkomnir í teitið… koma svo!!!
Mæting á morgun kl 13:00
Getur einhver reddað línuvörðum erum ekki með neinn slíkan, og Jóna Benný getur ekki reddað okkur í þetta skiptið eins og hún hefur gert fyrir okkur í síðustu leikjum.
Hver ætlar að vera með kaffi?
Liðið á morgun er svohljóðandi.
Inga Dís/black beauty
Jónína
Berglind Sandra Thea
Hansína Jonna Þóra Heiðrún Villa
Jóna Benný Guðrún Soffía
Erla, Unnur, Stefanía
Á laugardaginn er leikur við Leikni frá Fáskrúðsfirði á KA-vellinum klukkan 14:00. Ef þið hafið einhverjar hugmyndir um frambærilega línuverði væri gaman að fá að heyra af þeim því Hamrastrákarnir verða að spila á Kongó á sama tíma.
Skráið ykkur í leikinn hérna og látið vita hvort þið eruð game í pott eftir leik líka en okkur sýnist á öllu að flestar ætli að beila á því.
Um kvöldið er svo planað teiti og það væri gaman að vita hvort einhverjar ætli að mæta í það…
Kv. JBK
Á morgun ætlum við að hittast við gervigrasblakvöllinn í Lundarskóla kl. 18:30 og taka létt skallablak og svo er planað að fara í sund á eftir. Þetta verður að sjálfsögðu hrikalega gaman og rétt er að vara fólk við því að þegar kvennalið Magna fór í skallablak í fyrra varð oft ansi heitt í kolunum
/JBK