Ég setti tvö ný myndaalbúm í myndalinkana hérna til hliðar…Bæði myndir frá lokahófinu og frá leiknum á móti Tindastóli
/JBK
Ég setti tvö ný myndaalbúm í myndalinkana hérna til hliðar…Bæði myndir frá lokahófinu og frá leiknum á móti Tindastóli
/JBK
Menningarnótt, Fiskidagurinn mikli, Þjóðhátíð í Eyjum, Gay Pride og Hróarskelduhátíðin munu blikna í samanburði við LOKAHÓF HAMRASTÚLKNA sem haldið verður laugardaginn 18. ágúst. Lokahófið mun innihalda allan pakkann: Útihátíð, tónleika, dýrindis mat, eðalfélagsskap og lúxusgistingu. Þeim, sem eru spenntari fyrir því að gista í tjaldi, er bent á tjaldstæðin í Þórunnarstræti og á Hömrum en þær sem eru á aldrinum 18 – 23 ára verða að sætta sig við lúxusgistinguna.
Útihátíðin hefst klukkan 13:00 með mætingu í Tjarnarlund 15c. Gestkomandi eru beðnir að halda hestum sínum og hafa sig hæga vegna öfgafullra hótana nágranna um að láta reka húsráðanda úr blokkinni eftir síðasta Hamrapartý í þessari íbúð.
Nauðsynlegum fylgihlutum verður dreift á hópinn áður en við höldum á vit ævintýranna. Útihátíðinni mun ljúka um kl. 16:00 og eru þátttakendur frjálsir ferða sinna til klukkan 19:30.
Æskilegt er að hafa eftirfarandi hluti meðferðis á þessa útihátíð:
Ferðapeysu
Klæðnað eftir veðri
Klæðnað eftir verði (gott væri ef samanlagt verð væri ekki undir 15.000 kr. fyrir utan skó)
Söngvökva
Flugelda (fyrir þær sem ekki geta hugsað sér útihátíð án þeirra)
Eftirfarandi hluti er æskilegt að skilja eftir heima:
Maka
Börn
Bíl
Hverskyns húsdýr
Foreldra
Tengdamæður
Athugið að vegna misjafns líkamlegs ástands liðsmanna verður ekki mikil hreyfing á hópnum á útihátíðinni og þarf að taka tillit til þess í fatavali.
Hátíðarhöldin munu halda áfram innadyra um kvöldið. Skeifan, félagsheimili Hestamannafélagsins Léttis mun opna kl. 19:30 og verða tónleikar, fordrykkur, smáréttir og skemmtiatriði á boðstólnum frá klukkan 20:00. Aðgangseyrir er 3500 kr. Þrátt fyrir að undirbúningsnefndin standi fyrir ýmsum uppákomum eru óbreyttir liðsmenn hvattir til að mæta með samkvæmisleiki og frumsamin skemmtiatriði.
Eftirfarandi atriði skal hafa í huga:
Ætlast er til að fólk mæti í sínu fínasta pússi
Áfengi þarf hver að koma með fyrir sig
Greiða þarf fyrir herlegheitin við komu. Gjaldkerinn hefur ekki gefið grænt ljós á að renna kortum í raufina svo þið skulið greiða með peningum.
Nærveru okkar er svo óskað á skemmtistöðum bæjarins sem munu hafa opið til klukkan 4:00 og er ætlast til að Hamragellur láti ljós sitt skína þar til önnur ljós hafa verið kveikt.
Þegar allar hafa slitið ballskónum ærlega er boðið upp á lúxusgistingu í heimahúsum víðsvegar um bæinn og þið verðið eflaust ekki í vandræðum með að ráða fram úr því.
Góðar stundir
Virðingarfyllst
Undirbúningsnefndin
Síðasta leik sumarsins er lokið og fór hann fram á KA-vellinum í 6 stiga hita í kvöld.
Fyrri hálfleikur fór fram á vinstri kantinum vegna hvassviðris. Við áttum nokkur góð færi sem hefðu getað nýst betur ef “sumir” hefðu verið á skotskónum
Við komumst í 1-0 eftir að Jóna skallaði boltann upp kantinn á Guðrúnu Soffíu sem hljóp upp kantinn og kláraði færið vel. Tindastóll jafnaði svo fyrir leikhlé en eins og áður segir hefðum við vel getað skorað fleiri mörk í hálfleiknum.
Í hálfleik voru gerðar breytingar á liðinu og við fórum úr 5 -3 – 2 í 4 – 4 – 2. Guðrún Hulda og Heiðrún Villa komu inn á fyrir Stefaníu og Berglindi, Guðrún Soffía og Heiðrún fóru á kantana, Sæa í bakvörð, Guðrún Hulda fram og Jóna niður á miðju. Þær byrjuðu af aðeins meiri krafti en við og komust í 1 -2 en Inga stóð sína vakt í markinu að sjálfsögðu með sóma í þessum leik þó hún hafi ekki haft eins mikið að gera og í síðasta leik á móti þeim. Við áttum nokkur skot á markið og var Heiðrún Villa nálægt því að jafna eftir frábæran sprett upp kantinn. Þóra var líka mjög nálægt því að skora með skalla eftir hornspyrnu. Svo kom að því rétt fyrir leikslok að Jóna var eitthvað að þvælast með boltann fyrir utan teig, kom honum á Guðrúnu Soffíu sem kláraði færið eins og henni einni er lagið og jafntefli var niðurstaðan.
Við erum því í 3. sæti riðilsins og Tindastóll á ekki möguleika á að ná okkur eftir þetta.
Gaman að sjá liðið koma til baka eftir að hafa slakað á í upphafi seinni hálfleiks og klára þetta með því að jafna.
Nú er hinsvegar komið að því að lokahófið okkar verður á laugardaginn og er vona á pistli varðandi það hérna inn mjög fljótlega…
Við minnum ykkur á að skrá ykkur í þann rosalega viðburð og vonandi sjáum við einhverjar af gömlu Magnagellunum taka fram ballskóna að nýju
Þá er komið að því síðasti leikur sumarsins
Liðið er svohljóðandi
Inga Dís markmaður
Jónína svíper
Sandra og Sæa miðverðir
Thea vinstri bakvörður
Berglind hægri bakvörður
Guðrún Soffía, Þóra og Hansína miðja
Heiðrún Villa og Jóna Benný framherjar
Mæting ekki seinna en klukkan 17:30 því það verður myndataka í ferðapeysum og búningum fyrir leikinn.
yfir og út stefanía
… að um næstu helgi verði eitthvað lokahófsmegapartýdæmi svo það er eins gott að taka frá næstkomandi laugardag fyrir það
Undirbúningsnefndin er komin á fullt og planið er að verða stórkostlegt, mikilfenglegt og hreint út sagt óviðjafnanlegt!!!
Svo þið hafið einhverja hugmynd um hvað verður í gangi (ekki þó of mikla) og getið gert ráð fyrir því í plönum ykkar þá verða smávægilegar breytingar til hins betra frá fyrra ári. Stærsta breytingin er þó sú að við ætlum ekki að vera með stanslausa dagskrá frá morgni til kvölds því það sýndi sig í fyrra að menn voru orðnir ansi þreyttir fyrir miðnætti (sjá meðfylgjandi mynd) svo það fór að týnast snemma úr hópnum.

Í ár verður því dagskrá frá klukkan 13 – 16 og svo hefst gleðin sjálf klukkan 20:00. Þetta verður allt saman algjörlega ómissandi fyrir ykkur svo nú er um að gera að losa sig við allar skyldur lífsins og mæta í gleðina
Við þurfum að vita fjölda þeirra sem ætla að mæta svo það væri mjög gott að þið mynduð skrá ykkur hérna fyrir neðan í kommentin fyrir næstkomandi miðvikudag (bæði hvort þið komið um daginn og hvort þið komið um kvöldið )og látið vita í leiðinni hvort þið gefið kost á ykkur í leikinn á móti Tindastóli
Athugið að gamlar Magnagellur eru að sjálfsögðu boðnar velkomnar í lokahófið um kvöldið
/JBK
Liðið á morgun
Inga Dís
Jónína
Berglind Sandra Thea
Hansína Þóra Guðrún Soffía Stefanía
Jóna Benný Heiðrún Villa
Varamenn Herdís og Unnur
Mæting hálf 4 brottför korter í 4.
Hverjir komast á bíl?
Búið er að staðfesta nýjan leiktíma á Egilsstöðum og verður leikurinn klukkan 20:00 á Vilhjálmsvelli á morgun. Við hittumst klukkan 15:30 á Leirunni og förum af stað fljótlega upp úr því. Þær sem ætla á bíl verða að skrá sig hérna fyrir neðan og það væri líka gott að staðfesta hverjar eru á leið í þennan leik.
Jóna Benný, Inga Dís, Heiðrún Villa, Guðrún Soffía, Stefanía, Herdís, Sandra, Thea, Berglind, Unnur, Jónína og hugsanlega Hansína eru búnar að skrifa sig. Það væri mjög gott ef fleiri myndu mæta
Þar sem fæstar eru búnar að borga fyrir síðustu ferð austur á Neskaupsstað þá kemur ekki annað til greina í þetta skiptið en að fólk verði búið að fara í hraðbanka og borgi bílstjórunum á staðnum. Það verður um það bil 3000 kall.
/JBK
Nú erum við að raka inn seðlum fyrir fjáraflanir…
Við Inga Dís tókum nett grill í einn og hálfan tíma hjá Hagkaup áðan og fáum við væntanlega smá pening fyrir það
Munið að skrá ykkur í leikinn hérna fyrir neðan…
Kveðja
Jóna Benný
Leiknum sem átti að vera á föstudaginn/laugardaginn eftir viku hefur verið flýtt og mun hann verða spilaður á Vilhjálmsvelli næstkomandi miðvikudag klukkan 19:00.
Þær sem komast í leikinn eru beðnar um að skrá sig hérna fyrir neðan í kommentin.
/JBK