Hamrarnir 2 – 2 Tindastóll

Síðasta leik sumarsins er lokið og fór hann fram á KA-vellinum í 6 stiga hita í kvöld.

Fyrri hálfleikur fór fram á vinstri kantinum vegna hvassviðris. Við áttum nokkur góð færi sem hefðu getað nýst betur ef “sumir” hefðu verið á skotskónum ;)   Við komumst í 1-0 eftir að Jóna skallaði boltann upp kantinn á Guðrúnu Soffíu sem hljóp upp kantinn og kláraði færið vel. Tindastóll jafnaði svo fyrir leikhlé en eins og áður segir hefðum við vel getað skorað fleiri mörk í hálfleiknum.

Í hálfleik voru gerðar breytingar á liðinu og við fórum úr 5 -3 – 2 í 4 – 4 – 2. Guðrún Hulda og Heiðrún Villa komu inn á fyrir Stefaníu og Berglindi, Guðrún Soffía og Heiðrún fóru á kantana, Sæa í bakvörð, Guðrún Hulda fram og Jóna niður á miðju. Þær byrjuðu af aðeins meiri krafti en við og komust í 1 -2 en Inga stóð sína vakt í markinu að sjálfsögðu með sóma í þessum leik þó hún hafi ekki haft eins mikið að gera og í síðasta leik á móti þeim. Við áttum nokkur skot á markið og var Heiðrún Villa nálægt því að jafna eftir frábæran sprett upp kantinn. Þóra var líka mjög nálægt því að skora með skalla eftir hornspyrnu. Svo kom að því rétt fyrir leikslok að Jóna var eitthvað að þvælast með boltann fyrir utan teig, kom honum á Guðrúnu Soffíu sem kláraði færið eins og henni einni er lagið og jafntefli var niðurstaðan.

Við erum því í 3. sæti riðilsins og Tindastóll á ekki möguleika á að ná okkur eftir þetta.

Gaman að sjá liðið koma til baka eftir að hafa slakað á í upphafi seinni hálfleiks og klára þetta með því að jafna.

Nú er hinsvegar komið að því að lokahófið okkar verður á laugardaginn og er vona á pistli varðandi það hérna inn mjög fljótlega…

Við minnum ykkur á að skrá ykkur í þann rosalega viðburð og vonandi sjáum við einhverjar af gömlu Magnagellunum taka fram ballskóna að nýju ;)

Skrifað í Uncategorized. 11 ummæli »

11 svör to “Hamrarnir 2 – 2 Tindastóll”

  1. Kristín Hanna Says:

    Húrra fyrir Hömrunum !!! hipphipp húrra, hipphipp húrra, hipphipp HÚRRA

    gaman að fá svona eitt jafntefli

  2. Inga Dís Says:

    Já stelpur þetta var bara fínn leikur hjá okkur og eins og capteininn sagði eftir leikinn þá er þetta í fyrsta skipti sem við komum til baka eftir að hafa lent undir og það er gaman að enda sumarið svoleiðis ;)

    Ég er orðin hrikalega spennt fyrir laugardeginum og enn spenntari að vita hverjar ætla að koma, þannig að eins og jóna sagði skrá sig í þetta, þetta verður stuð ;)

    Ég s.s. mæti í allt á laugardaginn ;)

  3. Hanna Sigrún Says:

    Ég stefni á að mæta í allt…get samt ekki lofað því 100% en mæti allavega um daginn :)

  4. jonina Says:

    Hæ stelpur
    Takk fyrir góðan leik. Úff ég er nú reyndar eftir mig eftir hann enda kvefið alls ekki farið þarna í gær. Ég kemst því miður ekki á laugardaginn þar sem ég verð í skólanum frá 8-18 þann daginn og svo er matarboð um kvöldið en ef það er búið snemma og ég ekki dauð eftir að hafa reynt að troða vitneskju inn í hausinn þá kíki ég kannski á ykkur.
    kv. Jónína

  5. Erla Fr. Says:

    Til hamingju með góðan leik :) Ég verð fyrir sunnan þessa helgi þannig að því miður kemst ég ekki á lokahófið.
    Er þetta þá allt saman búið í sumar?

  6. Jóna Says:

    Eftir lokahófið verður gott frí þangað til æfingar byrja aftur í vetur :)

  7. herdiseiriks Says:

    ég er enn veik og frá vinnu, en ég stefni á að verða orðin semí frísk á laugardaginn. Svo ég skrái mig hér með í þetta húllumhæ um kvöldið, er að vinna yfir daginn :)

  8. Guðrún Soffía Says:

    Ég kemst á laugardaginn… verð um daginn og svo eitthvað frameftir kvöldi líka!

  9. Kristín Hanna Says:

    ég kem líklega í allt bara ;)

  10. Berglind Yngva Says:

    ég kem um daginn og svo pínu seint um kvöldið , er að vinna sem kemur kannski ekki á óvart ;)

  11. Ásrún Says:

    þið voruð snilld á leiknum gellur ;)


Skildu eftir svar