Menningarnótt, Fiskidagurinn mikli, Þjóðhátíð í Eyjum, Gay Pride og Hróarskelduhátíðin munu blikna í samanburði við LOKAHÓF HAMRASTÚLKNA sem haldið verður laugardaginn 18. ágúst. Lokahófið mun innihalda allan pakkann: Útihátíð, tónleika, dýrindis mat, eðalfélagsskap og lúxusgistingu. Þeim, sem eru spenntari fyrir því að gista í tjaldi, er bent á tjaldstæðin í Þórunnarstræti og á Hömrum en þær sem eru á aldrinum 18 – 23 ára verða að sætta sig við lúxusgistinguna.
Útihátíðin hefst klukkan 13:00 með mætingu í Tjarnarlund 15c. Gestkomandi eru beðnir að halda hestum sínum og hafa sig hæga vegna öfgafullra hótana nágranna um að láta reka húsráðanda úr blokkinni eftir síðasta Hamrapartý í þessari íbúð.
Nauðsynlegum fylgihlutum verður dreift á hópinn áður en við höldum á vit ævintýranna. Útihátíðinni mun ljúka um kl. 16:00 og eru þátttakendur frjálsir ferða sinna til klukkan 19:30.
Æskilegt er að hafa eftirfarandi hluti meðferðis á þessa útihátíð:
Ferðapeysu
Klæðnað eftir veðri
Klæðnað eftir verði (gott væri ef samanlagt verð væri ekki undir 15.000 kr. fyrir utan skó)
Söngvökva
Flugelda (fyrir þær sem ekki geta hugsað sér útihátíð án þeirra)
Eftirfarandi hluti er æskilegt að skilja eftir heima:
Maka
Börn
Bíl
Hverskyns húsdýr
Foreldra
Tengdamæður
Athugið að vegna misjafns líkamlegs ástands liðsmanna verður ekki mikil hreyfing á hópnum á útihátíðinni og þarf að taka tillit til þess í fatavali.
Hátíðarhöldin munu halda áfram innadyra um kvöldið. Skeifan, félagsheimili Hestamannafélagsins Léttis mun opna kl. 19:30 og verða tónleikar, fordrykkur, smáréttir og skemmtiatriði á boðstólnum frá klukkan 20:00. Aðgangseyrir er 3500 kr. Þrátt fyrir að undirbúningsnefndin standi fyrir ýmsum uppákomum eru óbreyttir liðsmenn hvattir til að mæta með samkvæmisleiki og frumsamin skemmtiatriði.
Eftirfarandi atriði skal hafa í huga:
Ætlast er til að fólk mæti í sínu fínasta pússi
Áfengi þarf hver að koma með fyrir sig
Greiða þarf fyrir herlegheitin við komu. Gjaldkerinn hefur ekki gefið grænt ljós á að renna kortum í raufina svo þið skulið greiða með peningum.
Nærveru okkar er svo óskað á skemmtistöðum bæjarins sem munu hafa opið til klukkan 4:00 og er ætlast til að Hamragellur láti ljós sitt skína þar til önnur ljós hafa verið kveikt.
Þegar allar hafa slitið ballskónum ærlega er boðið upp á lúxusgistingu í heimahúsum víðsvegar um bæinn og þið verðið eflaust ekki í vandræðum með að ráða fram úr því.
Góðar stundir
Virðingarfyllst
Undirbúningsnefndin
ágúst 18, 2007 klukkan 11:15 am
Þær sem búið er að gera ráð fyrir að mæti eru:
Jóna Benný, Inga Dís, Sandra, Þóra, Sæa, Stefanía, Berglind, Guðrún Hulda, Erla Hleiður, Guðrún Soffía, Kristín Hanna, Hrabba, Herdís (um kvöldið), Heiðrún Villa, Unnur og Hanna Sigrún. Leiðréttið mig ef ég er að gleyma einhverjum… Það er ennþá hægt að skrá sig í þennan stórviðburð ef þið hafið ekkert betra við tímann að gera í dag og í kvöld
ágúst 18, 2007 klukkan 8:57 pm
Hæ gellur. ég verð bara að vera heima í kvöld
ætla að djamma á stað sem heitir WC:)
skemmtið ykkur vel
ágúst 18, 2007 klukkan 8:58 pm
… kannski too much information
ágúst 19, 2007 klukkan 6:01 pm
hæ, ætlaði bara að láta vitað ég miskildi víst eitthvað hvernær við ætluðum að þrífa og mætti kl 4 og þá var enginn og svo þegar eg kom aftur þá var búið að þrífa…þannig að sorrí að ég hjálpaði ykkur ekki !
ágúst 19, 2007 klukkan 8:15 pm
Er búin að vera í sveitinni í allan dag nennti ekki að keyra í bæjinn til að fara aftur. Vona að tiltekt hafi gengið vel.
Takk annars fyrir gærkvöldið mjög skemmtilegt,
Herdís og Erla Hleiður komu mér mest á óvart bahahah
Sjáumst vonandi sem allra fyrst
ágúst 19, 2007 klukkan 8:53 pm
Ég, Inga Dís, Erla H, Þóra og Sessilía redduðum tiltektinni
En annars takk innilega fyrir mjög skemmtilegan dag og kvöld, þetta var geggjað.
Áfram Hamrarnir!