Á þriðjudaginn ætlum við aftur að spila við/með 3ja flokki kvenna hjá Þór og KA en þetta var mjög skemmtilegt á sunnudaginn.
Leikurinn byrjar klukkan 17:00 svo það er mæting 16:30 í Hamar. Athugið að ef það verður grenjandi rigning fáum við ekki leyfi til að spila á vellinum. Það vantar 6 stelpur í þetta verkefni… Unnur, Heiðrún Villa og Jóna Benný mæta allavega, spurning með Guðrúnu Soffíu hvort hún komi ekki bara aðeins of seint ??? Endilega látið vita hvort þið eruð með
/JBK
september 10, 2007 klukkan 3:29 pm
Ég er búin í skólanum kl. 17 og þá fer ég heim, dressa mig og kem svo…
september 10, 2007 klukkan 4:03 pm
ég kemst
september 10, 2007 klukkan 5:53 pm
Hæ stelpur hvernig gekk á sunnudaginn, ég ætlaði að koma og horfa á en var í þrælavinnu hjá Villa að moka möl og smíða. Gaman að heyra að þið eruð að sparka svolítið.
Kv. Una
september 10, 2007 klukkan 8:48 pm
Ég kem liklegast eða eiginlega pottþétt of seint vegna vinnu. Er búin milli hálf 5 og 5.
september 11, 2007 klukkan 12:15 am
Þetta gekk alveg súper vel
Hamrastelpur + yngra árið unnu 6-4 og Guðrún Soffía gerði sér lítið fyrir og skoraði 4 mörk og við Unnur skoruðum eitt mark hvor
En því verður víst ekki neitað að maður var þreyttur eftir þetta og líka meðan á þessu stóð
september 11, 2007 klukkan 12:50 pm
Þetta er komið… Jóna, Guðrún Soffía, Heiðrún Villa, Stefanía, Unnur og Kristín Hanna…
september 11, 2007 klukkan 3:43 pm
Stefanía og Heiðrún Villa koma ekki svo það er pláss fyrir 2 í viðbót….
september 13, 2007 klukkan 8:31 pm
noh þetta líst mér á loksins smá fótbolti… er eitthvað meira í gangi á næstunni;)