Sælar,
Við erum að prófa okkur aðeins áfram með fótboltaeróbik og ætlum að bjóða ykkur í svoleiðis tíma næsta þriðjudag klukkan 20:00 – 21:00 í Íþróttahúsinu í Glerárskóla. Það væri gott ef þær sem eiga bolta kæmu með þá en við verðum líka með einhverja bolta. Það væri líka alveg magnað ef þær sem ætla að mæta skrái sig í kommentin og láti vita hvort þið komið með bolta eða ekki. Þetta er ekki bara fyrir Hamrastelpur svo þið megið alveg bjóða með ykkur ef þið viljið
Svona aðeins til útskýringar þá er fótboltaeróbik bara einfaldar tækniæfingar og hopp með bolta. Við höfðum svo hugsað okkur að spila fótbolta síðustu 20 mínúturnar.
Kv.
Jóna Benný og Sandra
september 20, 2007 klukkan 2:54 pm
Ég væri alveg til í að prufa þetta… hljómar allavega spennandi! Ég get ekki komið með bolta…
september 23, 2007 klukkan 8:01 pm
Ég mæti, og tek bolta með mér
september 24, 2007 klukkan 9:02 am
Hahaha þú varst semsagt ekki að grínast Jóna Benný
þið eruð snillingar!! Ég er ekki viss um að ég komi en ef ég kem þá mæti ég með bolta… gangi ykkur vel hehe
september 24, 2007 klukkan 10:50 am
Haha nei… þetta er háalvarlegt mál
október 1, 2007 klukkan 2:33 pm
Ætla einhverja að hittast annaðkvöld til að fara í bolta???
október 1, 2007 klukkan 9:05 pm
ég er til í bolta
október 1, 2007 klukkan 9:05 pm
Halló stelpur, ég var að fatta það að ég sótti aldrei ferðapeysuna mína! :S
ég borgaði samt og allt svoleiðis, er hún einhvers staðar gleymd og grafin eða er sjens að nálgast hana??
október 1, 2007 klukkan 11:44 pm
Ég lét eftir tímana í Glerárskóla en við gætum náttúrulega mætt á einhvern sparkvöll eða eitthvað þannig. Ég er reyndar að fara í almennar pyntingar hjá tannlækni í fyrramálið og veit ekki alveg hvort hann ætlar að rífa úr mér endajaxla eða hvað svo kannski verð ég ekkert ofurhress í bolta annað kvöld
október 9, 2007 klukkan 4:08 pm
Sá auglýsingu um Laugamótið í dag. Er einhver áhugi fyrir því??? Spilað er um miðjan nóvember…
október 9, 2007 klukkan 11:45 pm
Já maður, ég er game… Held að við ættum bara að hafa það þannig að þær sem vilja vera með búa sér til lið svo þetta verði ekki svona vesen eins og í fyrra með að skipta í lið
Þannig að til dæmis gæti Guðrún Soffía farið í það að búa sér til lið og ég gæti farið í það að búa mér til lið eða við myndum kannski vilja vera saman í liði bara
Þeir sem eru með geta samt sem áður spilað sem Hamrarnir, þá bara 1, 2, 3 og þannig eftir því hvað það eru mörg lið…
Hvað finnst ykkur um það?
október 10, 2007 klukkan 3:17 pm
Ég er game með ef ég er ekki að spila í handboltanum á sama tíma
Líst vel á þetta plan jóna mín
Erla við verðum bara að redda þessu með peysuna, það var einhver annar sem fékk að kaupa þína peysu af því að við heyrðum ekkert frá þér, hvaða stærð þarftu?
október 10, 2007 klukkan 5:55 pm
Já okei, ég myndi giska á að ég þyrfti small… held ég skjóti á það bara.
október 12, 2007 klukkan 9:32 pm
uh ég er til í að vera með, má ég vera með ykkur í liði ef þið ákveðið að vera saman:)
október 28, 2007 klukkan 4:23 pm
ef ykkur vantar í lið þá er ég til
október 30, 2007 klukkan 4:49 pm
Veit einhver hvernig er með tímana í Boganum sem við áttum að fá? Létum við þá frá okkur eða erum við ekki enn komnar með tíma? Væri alveg til í að hreyfa á mér rassg…. og fara í bolta
)
október 30, 2007 klukkan 9:34 pm
Við erum ekki komnar með neinn tíma… Þannig er málið sko…
nóvember 5, 2007 klukkan 11:12 am
Mig langar að sparka smá… maður má ekki missa niður rosalega formið sem maður var í síðastliðið sumar…
nóvember 5, 2007 klukkan 12:16 pm
hehe nákvæmlega…eigum við kannski að hittast á sparkvelli einhverntíman í vikunni eða um helgina…eða kannski bara bæði
nóvember 6, 2007 klukkan 2:10 pm
hæhæ endilega fariði að byrja í bolta hehe ég er alveg klár allavega
kveðja Rakel Óla …
nóvember 6, 2007 klukkan 10:05 pm
Hæ
Við erum tvær frá Mývatnssveit árgerð 91 og 90 og langar að æfa fótbolta en ekki með Þór… Ef þið eruð að æfa eitthvað … er þá möguleiki að fá að fara með ykkur á æfingar ???