Jæja… það eru allskonar fréttir. Guðrún Soffía hefur ákveðið að fara yfir í Þór/KA eftir þjálfarar liðsins lögðu hart að henni að koma til liðs við þá. Við styðjum hana að sjálfsögðu í því og óskum henni góðs gengis í úrvalsdeildinni enda hefur hún fulla burði til að blanda sér í baráttuna hjá þeim bestu
Sæa mun líklega ekki spila með okkur næsta sumar þar sem hún er flutt á Egilsstaði svo það er aldrei að vita nema við mætum henni bara á vellinum sem eru auðvitað ekki góðar fréttir fyrir okkur
Við erum auðvitað líka að bæta við okkur fólki því eins og þróunin hefur verið hingað til sækja leikmenn óðir í að spila með þessu stókostlega liði
Rakel Óla hefur til dæmis ákveðið að koma til okkar frá Þór/KA og það er að sjálfsögðu mikill styrkur fyrir okkur. Einnig er von á 9 leikmönnum úr barneignleyfi fyrir næsta sumar
Hrabba hefur allavega nefnt endurkomu sína í liðið og vonandi verður Kata V. komin í skotskóna aftur ásamt Sigrúnu Björk, Birnu, Hansínu, Hönnu Sigrúnu, Hrefnu og jafnvel Stínu Gísla. Þessar stelpur hafa reyndar ekki boðað komu sína en vonandi náum við að plata þær aftur af stað
Hvað segið þið annars um bolta á fimmtudaginn kl. 17:30 á sparkvellinum við Oddeyrarskóla. Eigum við ekki að segja að við hittumst þá og svo getum við þá planað annan hitting í framhaldinu? Að sjálfsögðu eru allir velkomnir í bolta með okkur svo það er bara að mæta
Kveðja
JBK
nóvember 6, 2007 klukkan 11:23 pm
Það væri líka gott að þið sem ætlið að mæta skráið ykkur hérna í kommentin svo maður geti séð hvort það verði einhver mæting eða hvort þetta er off
Ég mæti
/JBK
nóvember 7, 2007 klukkan 1:40 pm
ég er til en ég kæmi þá ekki fyrr en 6 er að þjálfa
nóvember 7, 2007 klukkan 3:50 pm
Já eigum við þá ekki bara að segja a við hittumst klukkan 18:00?
nóvember 7, 2007 klukkan 4:35 pm
Þó ég sé búin að svíkja lit væri ég alveg til í að koma og sprikla smá
)
nóvember 7, 2007 klukkan 4:55 pm
Já maður, skelltu þér, alltaf velkomin
nóvember 7, 2007 klukkan 5:26 pm
Hæ
Við mætum þá … ef að við meigum….
nóvember 7, 2007 klukkan 7:17 pm
en samt ekki fyrr en eftir 6
nóvember 8, 2007 klukkan 1:16 pm
Ég kem mjög líklega en þá kæmi ég pínu of seint…:)