Sælar…
Hefur einhver eitthvað á móti því að við færum þess einu æfingu í viku yfir á miðvikudaga? Ég var að spá í því vegna þess að þá gætum við kannski platað einhverjar hokkýgellur til að mæta stundum… Annars veit ég nú minnst um það hvenær hokkýæfingar eru…Kæmist þú á miðvikudögum kl. 18:30 Jónína???
/JBK
nóvember 15, 2007 klukkan 11:30 pm
Ég er allavega game á miðvikudögum því þá er engin handboltaæfing, eða allavega ekki fast
nóvember 16, 2007 klukkan 12:57 am
ég er til
nóvember 16, 2007 klukkan 8:30 am
ég er til á miðvikudögum, get ekki beðið að komast í bolta
nóvember 16, 2007 klukkan 2:34 pm
ÉG líka hentar mér betur
nóvember 16, 2007 klukkan 7:57 pm
Hæ hæ
Jiii æðislegt sorrí ég sá þetta ekki fyrr en í dag en já já já ég er á lausu á miðvikudögum og er ekkert smá til í bolta. Ég fylgist vel með fyrir næsta miðvikudag .
Sjáumst hressar og takk takk
kv. Jónína
nóvember 18, 2007 klukkan 7:37 pm
Ég kemt annan hvern miðvikudag
nóvember 20, 2007 klukkan 9:24 pm
hæ hæ
á að vera bolti á morgun?
Er alveg til í að mæta.
bíð spennt
kv. Jónína
nóvember 20, 2007 klukkan 11:02 pm
Jább…bolti á morgun, miðvikudag kl. 18:30… ég skal tékka á Lundarskóla áður en ég fer af stað – eigum við annars ekki bara að hittast í Brekkuskóla (líklegast að það sé enginn þar).
nóvember 21, 2007 klukkan 11:24 am
Flott flott
Ég mæti stundvíslega í Brekkuskóla í dag.
kv. Jónína
nóvember 21, 2007 klukkan 2:10 pm
ÆÆÆ heyrðu ég neyðist til að beila á ykkur! Það verður einhver önnur að koma með bolta
nóvember 21, 2007 klukkan 6:09 pm
Ég og sandra mætum
nóvember 21, 2007 klukkan 8:21 pm
Þetta var nú aldeilis hressandi sprikl þrátt fyrir mjög svo afleita mætingu. En við vorum bara 4 fengum lánaða 2 og síðar 4 stráka til að fylla uppí okkar tómlega lið.
En geggjað gaman vona að fleiri komi næsta miðvikudag kl hálf 7 á Brekkuskóla
nóvember 23, 2007 klukkan 3:43 pm
Já takk fyrir góða skemmtun. Það verða pottþétt fleiri næst og við munum skemmta okkur mjög vel.
Hlakka til að sjá ykkur
kv. Jónína