Pjéníngar…

Stelpur mínar… Þar sem okkur vantar örfáa þúsundkalla upp á að geta borgað þjálfara vorum laun þá þætti mér reglulega vænt um að þið mynduð hafa augun opin fyrir einhverjum fjáröflunum á næstunni. Nú fer að koma tími hinna miklu vörutalninga og þá gætum við kannski reddað okkur því sem upp á vantar ef allar hafa augu og eyru vel upp glennt og fylgjast með því hvort ekki er eitthvað að hafa fyrir okkur :)

Það væri líka gott ef fólk myndi skrifa í kommentin hvernig staðan er hjá þeim núna varðandi næsta sumar þó það bindi að sjálfsögðu engan til að vera með eða ekki með en það þarf að skrá lið í mótið í janúar og þá væri voðalega gott að hafa einhverja hugmynd um stöðuna á leikmönnum…

Ég sendi ykkur svo mínar bestu jólakveðjur og þakka fyrir frábærar stundir á árinu sem er að líða. Þar sem ég hef líklega önnur plön fyrir sumarið 2008 þá mun ég bara klára að reyna að finna út úr þessum peningamálum okkar og svo væri gott ef einhver myndi vilja taka við því að sjá um minn hluta af stjórnarstarfinu – sem sagt formaður, ritari og meðstjórnandi ;) – ákaflega gefandi og skemmtilegt starf og ekki mikið að gera framundan þar sem við erum komnar með búninga og allar græjur :)

Jólakveðjur

Jóna Benný

Skrifað í 1. 9 ummæli »

Miðvikudagur 5. des….

Bolti á miðvikudegi 5. des! Mæting í Brekkuskóla kl. 18:30. Ég veit ekki hvort ég kemst því ég er að fara í síðasta prófið mitt á fimmtudaginn en ég sé til í hversu góðum/vondum málum ég verð á miðvikudaginn :)

/JBK

Skrifað í 1. 7 ummæli »