Pjéníngar…

Stelpur mínar… Þar sem okkur vantar örfáa þúsundkalla upp á að geta borgað þjálfara vorum laun þá þætti mér reglulega vænt um að þið mynduð hafa augun opin fyrir einhverjum fjáröflunum á næstunni. Nú fer að koma tími hinna miklu vörutalninga og þá gætum við kannski reddað okkur því sem upp á vantar ef allar hafa augu og eyru vel upp glennt og fylgjast með því hvort ekki er eitthvað að hafa fyrir okkur :)

Það væri líka gott ef fólk myndi skrifa í kommentin hvernig staðan er hjá þeim núna varðandi næsta sumar þó það bindi að sjálfsögðu engan til að vera með eða ekki með en það þarf að skrá lið í mótið í janúar og þá væri voðalega gott að hafa einhverja hugmynd um stöðuna á leikmönnum…

Ég sendi ykkur svo mínar bestu jólakveðjur og þakka fyrir frábærar stundir á árinu sem er að líða. Þar sem ég hef líklega önnur plön fyrir sumarið 2008 þá mun ég bara klára að reyna að finna út úr þessum peningamálum okkar og svo væri gott ef einhver myndi vilja taka við því að sjá um minn hluta af stjórnarstarfinu – sem sagt formaður, ritari og meðstjórnandi ;) – ákaflega gefandi og skemmtilegt starf og ekki mikið að gera framundan þar sem við erum komnar með búninga og allar græjur :)

Jólakveðjur

Jóna Benný

Skrifað í 1. 9 ummæli »

9 svör to “Pjéníngar…”

  1. Inga Dís Says:

    Ég segi mig hér með úr stjórninni okkar góðu!!! ER gjörsamlega komin með nóg af þessu standi öllu saman…;) Hef reyndar engin plön enn sem komið er, en ætla taka mér frí frá þessum reddingium öllum.. En mun að sjálfsögðu klára mitt starf og því sem þarf að redda en eins og oft hefur verið minnst á þá þurfa þær sem skulda eitthvað að borga svo við getum klárað okkar dæmi ;) Við tökum slurk í þessu öllu saman eftir áramót…

  2. hanisna Says:

    hæhæ og gleðileg jól
    ég skula fyrir einni bikarleikjarferð. hvað skulda ég mikið og hvert á ég að leggja inn????
    Stelpur það eru enn margar sem skulda æfingargjöld og ferðir koma svo borga…….

  3. herdiseiriks Says:

    ég hafði hugsað mér að vera með næsta sumar.

  4. Lísbet Says:

    Sælar held að ég hafi verið búin að gera upp allar mínar skuldir en ef ekki hafið þá bara samband :) Vildi svo bara óska ykkur gleðilegra jóla og gæfu á komandi ári. Takk fyrir allar skemmtilegar og frábærar stundir á liðnum árum ;o)

  5. Þórey og Svanhildur Says:

    Eigum við ekkert að fara að hreyfa okkur eitthvað ??

  6. Jóna Benný Says:

    Heyrðu jú… hljómar vel fyrir mig… eigum við ekki bara að halda okkur við sama tíma og fyrir áramót og byrja í næstu viku? Eða viljiði breyta eitthvað?

  7. Þórey og Svanhildur Says:

    Þórey er náttúrulega í prófum núna en ég er góð ….. :)

  8. Unnur Rún Says:

    Ég verð líklega með næsta sumar, samt ekki alveg 100%…

  9. Stefanía Says:

    Var það miðvd eða fim


Skildu eftir svar