Þeir búningar sem eru farnir nr. 1 (Ingiríður), 2 (Unnur þú varst búin að panta það en ef þú vilt frekar nr. 3. þá er Sæa með nr. 2.), 3 (ef Unnur tekur það), 4 (Guðrún Soffía), 5 (Berglind), 6 (Jóna), 7 (Guðrún Hulda), 8 (Hansína), 9 (thea), 10 (Kristín Hanna)11 (Svanhildur), 13 (Stefanía), 15 (GUðrún Hulda). Þannig að núna eru búningar nr. 12, 14 og 16 eftir :) (Var ekki annars búningur nr. 12??? )

Endilega látið mig vita ef ég er ekki með rétt nr. skráð á ykkur… þetta er ekki alveg ljóst í kollinum á mér…

Þið getið komið og sótt þetta hvenær sem er og lagt peninginn inn á reikninginn okkar. Reikningsnr. er á æfingagjaldasíðunni sem er læst með sama lykilorði og hefur alltaf verið. Þið getið haft samband ef þið vitið ekki leyniorðið.

Er svo ekki kominn tími á fússball? Ég er reyndar að fara á videokvöld næsta miðvikudag en væri alveg til í bolta á mánudag t.d. :)

/Jóna Cantona

Skrifað í 1. 15 ummæli »

Hamrabúningar til sölu!!!

Jæja! Eins og þið vitið þá hefur Villi ekki fengið borgað frá okkur. Við eigum þó smá peninga fyrir þessu en ekki fyrir öllu. Þess vegna verðum við að hjálpast að við að selja þá sokka sem eftir eru. Við förum svo í gegnum það enn eina ferðina hverjar skulda peninga fyrir eitthvað frá síðasta sumri og rukkum fyrir það um leið og við finnum tíma í þetta (sem verður mjög fljótlega). Við erum ekki þær einu sem skuldum Villa heldur verðum við allar að hjálpast að við að borga þetta með því að selja sokkana. Það geta allir notað svona sokka og það ætti ekki að vera mikið vandamál að fá pabba og mömmu, afa og ömmu og einhverja fleiri ættingja sem má níðast á til að kaupa af sér nokkur sokkapör.

Nú eru líka til sölu Hamrabúningarnir ómótstæðilegu. Þetta eru án efa flottustu keppnisbúningar sem hægt er að fá og verðið er náttúrulega alveg glimrandi flott!

Sokkar, stuttbuxur og treyja = 3500 kr.

Upphitunarpeysa = 2000 kr.

Sokkar, stuttbuxur, treyja og upphitunarpeysa = 5000

Fyrstir koma fyrstir fá! Þið getið hringt í 8698650 (Jóna) til að panta búning eða pantað hérna á síðunni og haft svo samband til að koma og sækja hann eða við tökum okkur einn af okkar sívinsælu sunnudagsrúntum og skutlum þessu til ykkar við tækifæri :)

Kveðja

Jóna Benný og Inga Dís

Skrifað í 1. 13 ummæli »