Jæja! Eins og þið vitið þá hefur Villi ekki fengið borgað frá okkur. Við eigum þó smá peninga fyrir þessu en ekki fyrir öllu. Þess vegna verðum við að hjálpast að við að selja þá sokka sem eftir eru. Við förum svo í gegnum það enn eina ferðina hverjar skulda peninga fyrir eitthvað frá síðasta sumri og rukkum fyrir það um leið og við finnum tíma í þetta (sem verður mjög fljótlega). Við erum ekki þær einu sem skuldum Villa heldur verðum við allar að hjálpast að við að borga þetta með því að selja sokkana. Það geta allir notað svona sokka og það ætti ekki að vera mikið vandamál að fá pabba og mömmu, afa og ömmu og einhverja fleiri ættingja sem má níðast á til að kaupa af sér nokkur sokkapör.
Nú eru líka til sölu Hamrabúningarnir ómótstæðilegu. Þetta eru án efa flottustu keppnisbúningar sem hægt er að fá og verðið er náttúrulega alveg glimrandi flott!
Sokkar, stuttbuxur og treyja = 3500 kr.
Upphitunarpeysa = 2000 kr.
Sokkar, stuttbuxur, treyja og upphitunarpeysa = 5000
Fyrstir koma fyrstir fá! Þið getið hringt í 8698650 (Jóna) til að panta búning eða pantað hérna á síðunni og haft svo samband til að koma og sækja hann eða við tökum okkur einn af okkar sívinsælu sunnudagsrúntum og skutlum þessu til ykkar við tækifæri
Kveðja
Jóna Benný og Inga Dís
mars 8, 2008 klukkan 9:30 am
Eins og þið getið ímyndað ykkur er búið að kaupa búninga nr. 1 og 6
JBK & IDS
mars 9, 2008 klukkan 10:31 am
Treyjur nr. 1, 4, 5, og 6 eru seldar…
mars 9, 2008 klukkan 7:05 pm
ég er til í settið og númmer 7
ef það er í lagi
mars 9, 2008 klukkan 10:51 pm
Eigum við ekkert að fara að spila fótbolta bráðlega ???
Eru þessir búningar bara fyrir þá sem spila með Hömrunum eða fyrir alla ???
mars 11, 2008 klukkan 10:33 pm
Mig langar að kaupa allt settið á 5000…. og pant fá tíuna
mars 12, 2008 klukkan 1:45 pm
Mig langar í settið og nr. 2?
mars 13, 2008 klukkan 12:51 pm
Ég vil áttuna
mars 13, 2008 klukkan 9:46 pm
hæ, mig langar í sett, bara 9 eða 11 ef það er eftir, ég er reyndar í dk, en nennið þið að taka eitt sett frá fyrir mig, það væri æði:)
mars 16, 2008 klukkan 11:54 pm
Jebb ekkert mál… nr. 13 og 15 eru líka farnar
mars 16, 2008 klukkan 11:55 pm
Já og það mega allir kaupa… Við viljum losna við þetta allt, þannig að það er um að gera að drífa í að panta ef þið ætlið að fá… Já og nr. 4 er farin líka….
mars 21, 2008 klukkan 10:24 am
Ég væri allveg til í að fá nr. 11 ef hann er ekki farin…..
mars 23, 2008 klukkan 9:10 pm
HÆ Sæa hérna heyðu er nokkuð númerið mitt farið nr2
mars 26, 2008 klukkan 12:41 pm
Er nr 3 eftir?