Fótbolti á miðvikudögum???

Sælar…

Hefur einhver eitthvað á móti því að við færum þess einu æfingu í viku yfir á miðvikudaga? Ég var að spá í því vegna þess að þá gætum við kannski platað einhverjar hokkýgellur til að mæta stundum… Annars veit ég nú minnst um það hvenær hokkýæfingar eru…Kæmist þú á miðvikudögum kl. 18:30 Jónína???

/JBK

Skrifað í 1. 13 ummæli »

Fótbolti á fimmtudögum

Það var alveg stórkostlega magnað að komast aðeins í fótbolta í dag. Við settum á fastan tíma og ætlum framvegis að hittast klukkan 18:15 á fimmtudögum á sparkvellinum við Giljaskóla og sparka aðeins. Vonandi verður betri mæting næst en við vorum bara 6 í dag. Það væri mjög gott ef þið mynduð fylgjast með á síðunni og skrá ykkur í bolta svo maður fari ekki fýluferð og engar mættar í bolta.

Um næstu helgi, nánar tiltekið á föstudaginn 16. nóv., er svo Laugamótið. Við erum komnar með eitt lið í mótið og endilega ættu fleiri að skrá lið og vera með undir merkjum Hamranna. Þið getið líka hringt í mig og ég skrái lið fyrir ykkur en þetta verður að gerast fyrr en seinna.

Kveðja

JBK

Skrifað í 1. 12 ummæli »

Ný færsla vúhú!!!

Jæja… það eru allskonar fréttir. Guðrún Soffía hefur ákveðið að fara yfir í Þór/KA eftir þjálfarar liðsins lögðu hart að henni að koma til liðs við þá. Við styðjum hana að sjálfsögðu í því og óskum henni góðs gengis í úrvalsdeildinni enda hefur hún fulla burði til að blanda sér í baráttuna hjá þeim bestu :) Sæa mun líklega ekki spila með okkur næsta sumar þar sem hún er flutt á Egilsstaði svo það er aldrei að vita nema við mætum henni bara á vellinum sem eru auðvitað ekki góðar fréttir fyrir okkur ;)

Við erum auðvitað líka að bæta við okkur fólki því eins og þróunin hefur verið hingað til sækja leikmenn óðir í að spila með þessu stókostlega liði ;) Rakel Óla hefur til dæmis ákveðið að koma til okkar frá Þór/KA og það er að sjálfsögðu mikill styrkur fyrir okkur. Einnig er von á 9 leikmönnum úr barneignleyfi fyrir næsta sumar ;) Hrabba hefur allavega nefnt endurkomu sína í liðið og vonandi verður Kata V. komin í skotskóna aftur ásamt Sigrúnu Björk, Birnu, Hansínu, Hönnu Sigrúnu, Hrefnu og jafnvel Stínu Gísla. Þessar stelpur hafa reyndar ekki boðað komu sína en vonandi náum við að plata þær aftur af stað ;)

Hvað segið þið annars um bolta á fimmtudaginn kl. 17:30 á sparkvellinum við Oddeyrarskóla. Eigum við ekki að segja að við hittumst þá og svo getum við þá planað annan hitting í framhaldinu? Að sjálfsögðu eru allir velkomnir í bolta með okkur svo það er bara að mæta :)

Kveðja

JBK

Skrifað í 1. 8 ummæli »

Fótbolti fótbolti fótbolti

Sælar,

Við erum að prófa okkur aðeins áfram með fótboltaeróbik og ætlum að bjóða ykkur í svoleiðis tíma næsta þriðjudag klukkan 20:00 – 21:00 í Íþróttahúsinu í Glerárskóla. Það væri gott ef þær sem eiga bolta kæmu með þá en við verðum líka með einhverja bolta. Það væri líka alveg magnað ef þær sem ætla að mæta skrái sig í kommentin og láti vita hvort þið komið með bolta eða ekki. Þetta er ekki bara fyrir Hamrastelpur svo þið megið alveg bjóða með ykkur ef þið viljið :)

Svona aðeins til útskýringar þá er fótboltaeróbik bara einfaldar tækniæfingar og hopp með bolta. Við höfðum svo hugsað okkur að spila fótbolta síðustu 20 mínúturnar.

Kv.

Jóna Benný og Sandra

Skrifað í Uncategorized. 20 ummæli »

Leikur á þriðjudaginn!!!

Á þriðjudaginn ætlum við aftur að spila við/með 3ja flokki kvenna hjá Þór og KA en þetta var mjög skemmtilegt á sunnudaginn.

Leikurinn byrjar klukkan 17:00 svo það er mæting 16:30 í Hamar. Athugið að ef það verður grenjandi rigning fáum við ekki leyfi til að spila á vellinum. Það vantar 6 stelpur í þetta verkefni… Unnur, Heiðrún Villa og Jóna Benný mæta allavega, spurning með Guðrúnu Soffíu hvort hún komi ekki bara aðeins of seint ??? Endilega látið vita hvort þið eruð með :)

/JBK

Skrifað í Uncategorized. 8 ummæli »

Fótbolti á sunnudag!!!

Á sunnudaginn vantar nokkrar stelpur til að spila gannileik í fótbolta. Þetta verður 11 manna bolti, frjálsar skipting og ægilega mikið stuð. Ég veit ekki alveg nákvæma tímasetningu en það væri frábært ef þið sem hafið áhuga mynduð skrá ykkur í kommentin sem fyrst :)

/JBK

Skrifað í Uncategorized. 8 ummæli »

Leikur í dag :)

Sælar, við Inga Dís og Sandra ætlum að skella okkur á Húsavík í dag og horfa Völsung spila seinni leikinn við Aftureldingu í úrslitum 1. deildar kvenna. Eins og þið vitið þá eru Völsungsstelpur í góðri stöðu því þær unnu fyrri leikinn 3-2 og um að gera að kíkja á þær og hvetja þær upp í úrvalsdeild :)

Það er fullur bíll hjá okkur en ef þið sjáið ykkur fært að bruna á Húsó þá skulið þið endilega skella ykkur :) Leikurinn er klukkan 16:30.

Kveðja

Jóna Benný

Skrifað í Uncategorized. 1 ummæli »

Myndir

Ég setti tvö ný myndaalbúm í myndalinkana hérna til hliðar…Bæði myndir frá lokahófinu og frá leiknum á móti Tindastóli

/JBK

Skrifað í Uncategorized. 4 ummæli »

Nú er komið að því !!!

Menningarnótt, Fiskidagurinn mikli, Þjóðhátíð í Eyjum, Gay Pride og Hróarskelduhátíðin munu blikna í samanburði við LOKAHÓF HAMRASTÚLKNA sem haldið verður laugardaginn 18. ágúst. Lokahófið mun innihalda allan pakkann: Útihátíð, tónleika, dýrindis mat, eðalfélagsskap og lúxusgistingu. Þeim, sem eru spenntari fyrir því að gista í tjaldi, er bent á tjaldstæðin í Þórunnarstræti og á Hömrum en þær sem eru á aldrinum 18 – 23 ára verða að sætta sig við lúxusgistinguna.

Útihátíðin hefst klukkan 13:00 með mætingu í Tjarnarlund 15c. Gestkomandi eru beðnir að halda hestum sínum og hafa sig hæga vegna öfgafullra hótana nágranna um að láta reka húsráðanda úr blokkinni eftir síðasta Hamrapartý í þessari íbúð.

Nauðsynlegum fylgihlutum verður dreift á hópinn áður en við höldum á vit ævintýranna. Útihátíðinni mun ljúka um kl. 16:00 og eru þátttakendur frjálsir ferða sinna til klukkan 19:30.

Æskilegt er að hafa eftirfarandi hluti meðferðis á þessa útihátíð:

Ferðapeysu

Klæðnað eftir veðri

Klæðnað eftir verði (gott væri ef samanlagt verð væri ekki undir 15.000 kr. fyrir utan skó)

Söngvökva

Flugelda (fyrir þær sem ekki geta hugsað sér útihátíð án þeirra)

Eftirfarandi hluti er æskilegt að skilja eftir heima:

Maka

Börn

Bíl

Hverskyns húsdýr

Foreldra

Tengdamæður

Athugið að vegna misjafns líkamlegs ástands liðsmanna verður ekki mikil hreyfing á hópnum á útihátíðinni og þarf að taka tillit til þess í fatavali.

Hátíðarhöldin munu halda áfram innadyra um kvöldið. Skeifan, félagsheimili Hestamannafélagsins Léttis mun opna kl. 19:30 og verða tónleikar, fordrykkur, smáréttir og skemmtiatriði á boðstólnum frá klukkan 20:00. Aðgangseyrir er 3500 kr. Þrátt fyrir að undirbúningsnefndin standi fyrir ýmsum uppákomum eru óbreyttir liðsmenn hvattir til að mæta með samkvæmisleiki og frumsamin skemmtiatriði.

Eftirfarandi atriði skal hafa í huga:

Ætlast er til að fólk mæti í sínu fínasta pússi

Áfengi þarf hver að koma með fyrir sig

Greiða þarf fyrir herlegheitin við komu. Gjaldkerinn hefur ekki gefið grænt ljós á að renna kortum í raufina svo þið skulið greiða með peningum.

Nærveru okkar er svo óskað á skemmtistöðum bæjarins sem munu hafa opið til klukkan 4:00 og er ætlast til að Hamragellur láti ljós sitt skína þar til önnur ljós hafa verið kveikt.

Þegar allar hafa slitið ballskónum ærlega er boðið upp á lúxusgistingu í heimahúsum víðsvegar um bæinn og þið verðið eflaust ekki í vandræðum með að ráða fram úr því.

Góðar stundir

Virðingarfyllst

Undirbúningsnefndin

Skrifað í Uncategorized. 6 ummæli »

Hamrarnir 2 – 2 Tindastóll

Síðasta leik sumarsins er lokið og fór hann fram á KA-vellinum í 6 stiga hita í kvöld.

Fyrri hálfleikur fór fram á vinstri kantinum vegna hvassviðris. Við áttum nokkur góð færi sem hefðu getað nýst betur ef “sumir” hefðu verið á skotskónum ;)   Við komumst í 1-0 eftir að Jóna skallaði boltann upp kantinn á Guðrúnu Soffíu sem hljóp upp kantinn og kláraði færið vel. Tindastóll jafnaði svo fyrir leikhlé en eins og áður segir hefðum við vel getað skorað fleiri mörk í hálfleiknum.

Í hálfleik voru gerðar breytingar á liðinu og við fórum úr 5 -3 – 2 í 4 – 4 – 2. Guðrún Hulda og Heiðrún Villa komu inn á fyrir Stefaníu og Berglindi, Guðrún Soffía og Heiðrún fóru á kantana, Sæa í bakvörð, Guðrún Hulda fram og Jóna niður á miðju. Þær byrjuðu af aðeins meiri krafti en við og komust í 1 -2 en Inga stóð sína vakt í markinu að sjálfsögðu með sóma í þessum leik þó hún hafi ekki haft eins mikið að gera og í síðasta leik á móti þeim. Við áttum nokkur skot á markið og var Heiðrún Villa nálægt því að jafna eftir frábæran sprett upp kantinn. Þóra var líka mjög nálægt því að skora með skalla eftir hornspyrnu. Svo kom að því rétt fyrir leikslok að Jóna var eitthvað að þvælast með boltann fyrir utan teig, kom honum á Guðrúnu Soffíu sem kláraði færið eins og henni einni er lagið og jafntefli var niðurstaðan.

Við erum því í 3. sæti riðilsins og Tindastóll á ekki möguleika á að ná okkur eftir þetta.

Gaman að sjá liðið koma til baka eftir að hafa slakað á í upphafi seinni hálfleiks og klára þetta með því að jafna.

Nú er hinsvegar komið að því að lokahófið okkar verður á laugardaginn og er vona á pistli varðandi það hérna inn mjög fljótlega…

Við minnum ykkur á að skrá ykkur í þann rosalega viðburð og vonandi sjáum við einhverjar af gömlu Magnagellunum taka fram ballskóna að nýju ;)

Skrifað í Uncategorized. 11 ummæli »